Skoða olíuhreinsistöð í Þýskalandi 14. júní 2007 12:29
Hópur sveitarstjórnarmanna frá Vestfjörðum fer til Þýskalands innan tíðar til að kynna sér rekstur olíhreinsistöðvar. Mikill áhugi er vestra fyrir hugmyndinni um slíka stöð sem annaðhvort yrði í Dýrafirði eða Arnarfirði. Þessir tveir firðir koma helst til greina fyrir slíka stöð þar sem menn eru lausir við háar haföldur en risaolíuskip yrðu við lægi við stöðina. Staðirnir tveir tilheyra hvor sínu sveitarfélaginu, Ísafirði og Vesturbyggð, en forsvarsmenn fyrirhugaðrar olíuhreinsistöðvar hittu sveitarstjórnarmenn í Vesturbyggð í gær. Á kynningarfundi í lok maí var Fjórðungssambandi Vestfjarða falið að gera athugun á stað undir þessa starfsemi og ýta af stað frumathugun á samfélagslegum áhrifum. Einnig var ákveðið að skipuleggja ferð til að skoða nýtískuolíuhreinsistöð í Evrópu. Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri fjórðungssambandsins, segir að þessi vinna í heild geti nýst gagnvart öðrum hugmyndum þó að olíuhreinsistöðin verði kveikjan að henni. Staðarvalsathugun og könnun á samfélagslegum áhrifum er á frumstigi. Aðalsteinn segir að ákveðið hafi verið að fara og skoða olíuhreinsistöð í Leuna vestur af Leipzig í Þýskalandi en hún er nokkru stærri en sú sem menn hafa áform um að reisa vestra. Þessi stöð sé með nýjustu tækni sambærilegri þeirri sem fyrirhugað er að nota vestra, gangi áformin eftir. Skoðunarferð sveitarstjórnarmanna verður farin í byrjun næsta mánaðar.
Mest lesið Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Innlent Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Innlent Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Innlent Fleiri fréttir Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Sjá meira