Hættur landgræðslu og verður farþegaflugvél 15. júní 2007 18:58
Eftir 34 ár við uppgræðslu landsins er þristurinn Páll Sveinsson hættur landgræðsluflugi og verður breytt á ný í farþegaflugvél. Í dag fór vélin í fyrstu kolefnisjöfnuðu flugferðina á Íslandi.Gamli þristurinn sinnti reyndar landgræðslustarfi í dag en þó með óbeinum hætti því ráðmenn Icelandair og Kolviðarverkefnisins, undir forystu Guðfinnu Bjarnadóttur alþingismanns notuðu vélina til að kynna verkefni í þágu skógræktar. Ávísun upp á 745 krónur sýnir hvað kostaði að kolefnisjafna hálftíma flugferð á þristinum en mótvægisaðgerðin eru fimm tré komin í íslenska jörð. Farþegum Icelandair býðst nú að kolefnisjafna flugferðir sínar með því að greiða mótframlag til Kolviðarsjóðsins. Til að bæta fyrir þá mengun sem hlýst af því að flytja hvern farþega til Kaupmannahafnar þarf þannig að planta trjám á móti sem kosta um 500 krónur. Af Páli Sveinssyni er það annars að frétta að hann verður ekkert notaður í sumar til áburðardreifingar. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og varaformaður Þristavinafélagsins telur raunar að flugvélin hafi farið í sitt síðasta landgræðsluflug. Sú áherslubreyting hafi orðið í landgræðslustarfinu að bændur og verktakar sinni nú dreifingunni. Einnig sé nú meiri áhersla lögð á sáningu melgresis sem ekki sé hægt að gera með flugvél. Það sé auk þess orðið of kostnaðarsamt að nota flugvél í ljósi þess hve litlu sé dreift. Páll Sveinsson sinnti landgræðsluflugi fyrst árið 1973 eða fyrir 34 árum. Áður var vélin notuð í innanlandsflugi hjá Flugfélagi Íslands og hét þá Gljáfaxi og segir Sveinn Runólfsson þristavinafélagið nú stefna að því að breyta vélinni aftur í farþegaflugvél og nota hana til útsýnisflugs.
Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Erlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira