Lífið

Fóru í viðtal hjá Playgirl

Hljómsveitin Ampop heldur ferna tónleika í Bandaríkjunum um næstu mánaðamót.
Hljómsveitin Ampop heldur ferna tónleika í Bandaríkjunum um næstu mánaðamót.

Hljómsveitin Ampop er í viðtali í nýjasta tölublaði erótíska tímaritsins Play-girl. Þar er sveitin sögð ein af þeim sem eru líklegar til árangurs á árinu 2007 í grein sem ber yfirskriftina „Northern Exposure“.

„Við þóttum tilvalið efni í þetta blað,“ segir Kjartan Friðrik Ólafsson, hljómborðsleikari Ampop, í léttum dúr. „Við kynntumst stelpu á Airwaves-hátíðinni og hún vildi endilega að við töluðum eitthvað við Playgirl.

Við erum samt dannaðir þar eins og alls staðar annars staðar en ég man samt ekki eftir því að annar Íslendingur hafi birst í Playgirl. Þetta er nú bara umfjöllun um bandið og ekki verið að gera mikið úr kynþokka okkar, nema kannski Bigga söngvara. Þar er verið að leggja merkingu í gælunafn hans, Biggi,“ segir Kjartan og hlær. „Þetta er meira hugsað sem kynning og þarna er verið að fjalla um skandinavísk bönd.“

Tónleikaferð um Bandaríkin
playgirl Ampop er í viðtali í nýjasta tölublaði Playgirl.
Ampop mun halda ferna tónleika í Bandaríkjunum um næstu mánaðamót. Hinn 30. janúar spilar sveitin á Cinespace í Hollywood og kvöldið eftir verður hún á Silverlake Lounge í Los Angeles. Fimmta og sjötta febrúar spilar Ampop síðan á TBA og Pianos í New York. „Markmiðið með þessari ferð til Bandaríkjanna er að kynna þessar fínu plötur sem við eigum. Vonandi finnum við einhvern farveg fyrir okkur þarna,“ segir Kjartan. Vonandi skemmtilegraAmpop spilaði síðast í Bandaríkjunum árið 2005 þegar hún tróð upp á South by Southwest-hátíðinni í Texas. Eftir það hélt sveitin tónleika í Kanada en kom við í millitíðinni í New York til að spila á Pianos. „Við fengum þokkalega fínar viðtökur en giggið á Pianos var reyndar ekkert sérstakt,“ segir Kjartan um síðustu ferð. „Ég vona að það verði skemmtilegra í þetta skiptið.“ Biðstaða í BretlandiHvað varðar Bretlandsmarkað segir Kjartan að hlutirnir séu í biðstöðu þar en stefnan sé tekin á að fara þangað út til að kynna nýjustu plötu Ampop, Sail to the Moon, sem kom út fyrir síðustu jól og fékk góðar viðtökur.

freyr@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.