Oliver sagður styðja við bakið á Íþróttaálfinum 10. janúar 2007 13:30 Jamie Oliver. The Sun hélt því fram að kokkurinn frægi hefði lýst yfir stuðningi við Latabæ og Orkuátakið. „
Við ætlum að vera með orkuátak í öðrum löndum en hvenær það verður er hins vegar ekki orðið ljóst,“ útskýrir Kjartan Már Kjartansson, upplýsingafulltrúi Latabæjar. Breska blaðið The Sun greindi frá því á mánudaginn að Íþróttaálfurinn og félagar hygðust hleypa slíku verkefni af stokkunum á næstu misserum. Svokallað Orkuátak hefur verið haldið tvívegis á Íslandi og notið mikilla vinsælda en þar geta krakkar unnið sér inn verðlaun fyrir heilsusamlegt líferni og fékk Latibær Norrænu heilsuverðlaunin árið 2004 fyrir framtakið. Enn fremur var því haldið fram af blaðamanni The Sun að sjónvarpskokkurinn heimsfrægi, Jamie Oliver, hefði lýst yfir stuðningi við átak Latabæjar en Kjartan segir þetta vera frekar ótímabæra frétt og byggða á sandi. „Oliver er þúsund sinnum stærri heldur en við í Bretlandi og hefur mikinn fjölda starfsmanna í kringum sig. Magnús og hann hafa ekki átt fund saman en við höfum komið okkur í samband við einn af starfsmönnum Olivers. Málið er hins vegar á algjörum byrjunarreit og það getur brugðið til beggja vona í þessu,“ segir Kjartan. „Við erum bara litlir karlar við hliðina á Oliver,“ bætir hann við en velferð og heilsa barna í Bretlandi hefur verið Jamie Oliver hugleikin og fór hann sjálfur í mikla herferð til að bæta fæðu í skólum fyrir nokkrum árum. Breskir fjölmiðlar sýndu viðtali sem birtist á sunnudaginn við Magnús Scheving í Sunday Times mikinn áhuga og skrifuðu flestir fréttir byggt á því viðtali. Kjartan segir að síminn hafi varla stoppað hjá sér í gær eftir að The Sun birti sína frétt og vildu fá að vita hvenær Orkuátakið brysti á enda virðist vera mikil þörf á slíkri herferð í Bretlandi. „Margar af þeim fréttum sem hafa birst eru frekar hæpnar,“ útskýrir Kjartan og áréttar að þetta sé ekki eitthvað sem sé að fara að gerast á allra næstu dögum. Þessi mikli áhugi breskra fjölmiðla sýnir hins vegar glöggt hversu vinsælt fyrirbærið er orðið í Bretlandi en Latibær er nú sýndur á sjónvarpsstöðvunum BBC og Nickelodeon. Auk þess komst smáskífan Bing Bang með lokalagi þáttarins í fjórða sætið á breska smáskífulistanum sína fyrstu viku á lista og stóra platan er þegar komin í gull. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Fleiri fréttir Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Sjá meira