Viðbrögðin komu á óvart 9. janúar 2007 16:30 Haukur og Hrafn Settu upp aðdáendasíðu til heiðurs Magna í gríni en það hefur heldur betur undið uppá sig. MYND/Heiða „
Þetta var nú eiginlega hálfgert djók," segja félagarnir Hrafn Áki Hrafnsson og Haukur Már Böðvarsson þegar þeir eru spurðir um aðdáendasíðuna magni-ficent.com sem þeir settu upp til heiðurs Magna Ásgeirssonar. Aðdáendasíðan hefur verið töluvert til umfjöllunar að undanförnu vegna falsaðrar fréttar um meint samband Magna við Dilönu en þær kjaftasögur fóru á fullt eftir að söngvarinn og Eyrún Haraldsdóttir ákváðu að slíta samvistir. Félagarnir upplýsa að notendafjöldinn á síðunni hafi fimmfaldast eftir að sambandsslitin urðu opinber. Tenglinum var síðar lokað og segir Haukur að það hafi verið gert að beiðni eins notandans. „Þetta er nú bara hluti af frægðinni og ég held að allir þeir sem ákveða að feta þessa slóð viti af þessari áhættu," segir Haukur spurður um hans viðbrögð við slíkum gróusögum. Vinsældir Magna jukust mikið eftir glæsilega frammistöðu hans í Rock Star: Supernova-raunveruleikaþáttunum en vinirnir segjast ekki hafa verið miklir aðdáendur söngvarans fyrir það. „Við fylgdumst með Rock Star-þáttunum og settum síðuna upp tveimur vikum fyrir úrslitaþáttinn," útskýrir Haukur en ekki stóð á viðbrögðunum. „Þau komu okkur í opna skjöldu og í dag er síðan með í kringum fjörutíu til fimmtíu þúsund flettingar á dag," bætir hann við en félagarnir segjast hafa tilfinningu fyrir því að gestir síðunnar séu flestir kvenkyns og þeir séu búsettir hér heima, í Bandaríkjunum og Kanada. Haukur segir að síðan hafi fljótlega breyst í lítið samfélag þar sem aðdáendur söngvarans skiptast á upplýsingum um Magna og spjalla saman um allt milli himins og jarðar. „Mér skilst að einhverjir hafi hist utan vefsíðunnar og skemmt sér saman," bætir Haukur við og segist jafnframt hafa haft fregnir af því að aðdáendasíðan hafi gefið þeim Rock Star-stjörnum sem komu hingað til lands einhverjar gjafir. „Magni sjálfur er mjög ánægður með síðuna og fylgist grannt með því sem þarna fer fram," útskýrir Haukur og segir þá ósjaldan setja inn fréttir af kappanum sem komnar eru frá honum sjálfum. „Við reynum að standa sem mest fyrir utan og forðumst að stjórna umræðunni."
Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið 35 lönd taka þátt í Eurovision á næsta ári Lífið Auður segir skilið við Gímaldið Menning Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Áskorun Fleiri fréttir 35 lönd taka þátt í Eurovision á næsta ári Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Sjá meira