Þreyttur á uppsagnarbréfum 3. janúar 2007 18:00 Andri Freyr Viðarsson fékk uppsagnarbréf sitt frá X-FM á gamlársdag eins og aðrir starfsmenn stöðvarinnar. Starfsfólki KissFM var líka sagt upp. MYND/Stefán „
Þetta er alveg óþolandi. Ég er búinn að fá nóg af þessum uppsagnarbréfum. Ég get svo svarið það. Þriðja skiptið á einu ári,” segir Andri Freyr Viðarsson útvarpsmaður en hann hefur verið annar umsjónarmaður Capone útvarpsþáttarins á X-Fm sem vakið hefur nokkra athygli á undanförnum árum og mánuðum. Öllum starfsmönnum á X-Fm og KissFm var sagt upp störfum á gamlársdag. Nú er bara leikin þar músík og engin dagskrárgerð í gangi. Andri segir uppgefna ástæðu fyrir lokun stöðvanna þá að Stef hafi svipt stöðvarnar útvarpsleyfi vegna skuldar. „En ég kaupi það nú ekki. Þetta er eitthvað plott. Það verður fundur á morgun [í dag] og þá kemur þetta betur í ljós. En, já, við erum með uppsagnarfrest. “Hangin’around” heima hjá mér. Ég kann ofsalega vel við það. Nú er bara að slaka á. Nema eitthvað annað gerist. Nema Valli sport opni aftur stöð! Það er aldrei að vita.” Yfirmaðurinn Kiddi Bigfoot þurfti að segja upp öllu starfsfólki X-FM og KissFM á gamlársdag. Hann veit ekki hver framtíð stöðvanna verður. Yfirmaður útvarpssviðs Íslenska útvarpsfélagsins, sem rekur stöðvarnar tvær, er Kristján Jónsson, betur þekktur sem Kiddi Bigfoot: „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um framtíð útvarpsstöðvanna. Hún verður tekin á næstu dögum.“ Hann segir það rangt að Stef hafi svipt stöðvarnar útvarpsleyfi vegna skuldar. Hið rétta sé að Stef hafi ekki samþykkt nýtt útvarpsleyfi sem svo er lagt fyrir útvarpsréttarnefnd, en hið gamla rann út um áramót. „Við skuldum eitthvað, það er rétt, en við skuldum Stef ekki neitt,“ segir Kiddi sem fékk það hlutskipti að segja starfsfólki sínu upp. Honum var sjálfum sömuleiðis sagt upp störfum. Aðspurður segir Kiddi að rekstur útvarpsstöðvanna hafi gengið bærilega. Gamlar skuldir hafi fylgt stöðvunum en ágætlega hafi gengið að vinna þær upp. Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóra Stefs, segir að stöðvarnar hafi verið í vanskilum við Stef. Af þeim sökum hafi samningi við þær verið rift. Skuldin hafi síðar verið gerð upp fram til áramóta. Vilji X-FM og KissFM fá endurnýjað útvarpsleyfi þurfi að ganga frá nýjum samningi við Stef, meðal annars með greiðslu trygginga.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira