Segist vera saklaus af smygli 16. júní 2006 06:00 Litháinn í héraðsdómi Fíkniefnamál er tengjast ferðum Litháa til landsins rata inn á borð dómstóla. MYND/hörður
Þrítugur litháískur karlmaður sagðist fyrir dómi í gær saklaus af því að flytja inn rúma tvo lítra af amfetamínbasa auk tæplega 700 millilítra af brennisteinssýru, til söludreifingar hér á landi. Mál Ríkissaksóknara gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Litháinn var stöðvaður við hefðbundið eftirlit tollvarða á Keflavíkurflugvelli 26. febrúar á þessu ári en hann var þá að koma til landsins frá Litháen í gegnum London. Í farangri hans fundust flöskur með sérkennilegum vökva. Vökvinn var rannsakaður og kom þá í ljós að í flöskunum var amfetamín í vökvaformi. Talið er að unnt sé að framleiða tæplega 2,4 kíló af amfetamínsúlfati, sem er algengasta neysluform efnisins hjá fíkniefnaneytendum, úr efnunum sem Litháinn flutti til landsins. Tveir Litháar hafa þegar verið dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á tæplega fjórum kílóum af metaamfetamíni, sem geymt var í sérstaklega útbúnu hólfi neðan í undirvagni bifreiðar sem flutt var til landsins með skipinu Norrænu. Litháarnir voru báðir dæmdir í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Austurlands. Jakob L. Kristinsson, dósent í lyfjafræði við Háskóla Íslands, sagði í viðtali við Fréttablaðið skömmu eftir að fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík hóf rannsókn á hugsanlegri amfetamínframleiðslu, að með tiltölulega lítilli fyrirhöfn væri auðvelt að framleiða fíkniefni. Aðeins "lágmarksþekking í efnafræði, auk réttra vinnubragða við tilraunavinnu", ætti að vera nóg til þess að búa til söluvæn fíkniefni, ef hráefni er til staðar. Jóhann Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, segir engin mál hafa komið upp vegna fíkniefnainnflutnings Litháa til landsins að undanförnu. "Við verðum að meta það sem svo að það hafi verið mikið áfall fyrir þá sem stóðu að innflutningnum á þessum efnum að hann hafi komist upp. Við höfðum ávinning af því að innflutningur á fíkniefnum með þessum hætti væri að aukast."
Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Sjá meira