Fóðrar hunda sína á hauslausum hestum 16. júní 2006 07:45 Hundabúrið Hér sjást hræin liggja hálfétin á víð og dreif um búr hundanna. Eigandi hundanna segir ekkert óeðlilegt við það að fóðra hundana á þessum hræjum. Fyrrverandi yfirdýralæknir segir ekki beint hægt að kalla þetta illa meðferð á dýrum en hún sé óeðlileg.
Dýraverndunarsamtökum Íslands barst á dögunum ábending um það að hundar í Flekkudal við Meðalfellsvatn væru fóðraðir á afhöfðuðum hesthræjum sem væru látin liggja undir berum himni dögum saman. Samtökin komu málinu áfram til Umhverfisstofnunar, sem skoðar nú málið. Þetta er mjög óvenjulegt," segir Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýralæknir. "Það er ekki beint hægt að kalla þetta illa meðferð að því leyti að hundarnir hafa greinilega nóg að éta en okkur finnst það mjög óeðlileg meðferð að fóðra hundana með þessum hætti." Halldór segir þetta ekki brot á neinum reglugerðum. "Þetta er svo óvanalegt að það hefur engum manni dottið í hug að setja nokkur reglugerðarákvæði gegn þessu. Okkur finnst þetta hins vegar ekki ganga upp og það stendur til að héraðsdýralæknir Reykjavíkur ræði við eigendurna og fái þá til að hætta þessu." Halldór segir ólíklegt að hætta skapist af því að láta hrátt kjötið liggja úti. "Auðvitað er það ókræsilegt en það er tæpast hægt að segja að það sé hundunum hættulegt. Hundar eru ýmsu vanir og þola ýmislegt. Það er frekar að það skapist af þessu vond lykt og að flugur gætu sótt í þetta. Það eðlilega væri að skera kjötið af beinunum og gefa hundunum það." Jóhannes Björnsson, ábúandi á jörðinni og eigandi hundanna, segir málið á misskilningi byggt. "Það sem er gert er að hrossum er slátrað og þau úrbeinuð og síðan eru hryggur og læri sett inn til hundanna og þeir látnir naga af beinunum í fjóra fimm daga. Það eru margir á Íslandi sem fóðra hunda á hrossakjöti og þetta var gert hér í samráði við dýralækni á sínum tíma. Það er búið að gera þetta í mörg ár og hundunum farnast vel." óhannes segist urða hræin eftir að hundarnir gæða sér á þeim en Halldór Runólfsson segir slíka urðun mjög óæskilega. Jóhannes segist eingöngu reyna að hugsa vel um hundana sína og þetta sé liður í því.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira