Brot á leikreglum segir bæjarfulltrúi 5. janúar 2006 21:29 Frá Seltjarnarnesi MYND/Valli
Það á að umbuna starfsmönnum Seltjarnarnesbæjar með einhverju öðru en gjafakorti í Kringlunni. Þetta segir oddviti minnihlutans í bæjarstjórn en bæjarstjóri hefur upp á sitt einsdæmi gefið vilyrði fyrir því að allir starfsmenn Seltjarnarnesbæjar, 300 að tölu, fái gjafakort að upphæð tuttugu þúsund krónur. Brot á leikreglum, segir fulltrúi minnihlutans. Eins og greint var frá í fréttum NFS í gærkvöldi þá fengu þrjátíu leikskólastarfsmenn á Seltjarnarnesi gjafabréf í Kringlunni upp á 20 þúsund krónur að gjöf frá bæjaryfirvöldum um áramótin. Bæjarstjóri Seltjarnarness, Jónmundur Guðmarsson, gaf vilyrði fyrir gjöfinni án samráðs við fjárhags- og launanefnd bæjarins. Oddviti minnihlutans í nefndinni, Guðrún Helga Brynleifsdóttir, er afar ósátt við vinnubrögðin og segir það ótæka stjórnsýslu að að ráðstafa peningum úr bæjarsjóði án þess að hafa til þess formlega heimild. Hún segist þó ekki vera að gagnrýna það að verið sé að umbuna bæjarstarfsmönnum - það verði hins vegar að fara að leikreglum. Þá hefur bæjarstjórinn einnig gefið vilyrði fyrir því að allir starfsmenn Seltjarnesbæjar, sem eru um 300, fái sams konar gjafabréf sem myndi kosta bæinn um 6-8 milljónir að sögn Guðrúnar. Fjárhags- og launanefndin mun funda um þann anga málsins í næstu viku, en leikskólastarfsmennirnir hafa hins vegar nú þegar fengið sín gjafabréf afhent. Aðspurð hvort hún hyggist greiða atkvæði gegn því á fundinum að allir starfsmenn bæjarins fái gjafabréf segist hún vilja skoða aðrar leiðir. Þetta sé hálfgerð „dúsa". Prófkjör sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi fer fram í byrjun febrúar en bæjarstjórinn er þar í framboði. Guðrúnu finnst atburðarásin undanfarna daga bera keim af því, segir að það sé „prófkjörslykt" af málinu, enda sé bæjarstjórinn búinn að fá mótframboð.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira