Matvælaverð myndi lækka ef Ísland gengi í ESB 5. janúar 2006 20:51
Matvælaverð á Íslandi myndi lækka ef gengið yrði í Evrópusambandið. Eins væri hægt að lækka matvöruverð með því að afnema tolla og fjarlægja viðskiptahöft af innfluttum matvælum. Þetta segir aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík. Á fundi Samtaka verslunar og þjónustu og Félags viðskipta- og hagfræðinga í morgun var fjallað um hvað landbúnaðarstefnan kostar og hvað sé hægt að gera til að lækka matvöruverð hér á landi. Aðalsteinn Leifsson aðjúnkt við Hákólann í Reykjavík segir hagkvæmast að gera snöggar breytingar á landbúnaðarstefnunni en það sé ekki endilega mögulegt út frá pólitísku sjónarmiði. En hvað telur hann helst mögulegt að gera til þess að lækka matvöruverð? Aðalsteinn segir það einkum vera tvo þætti sem skipti þar máli. Í fyrsta lagi þurfi virkt samkeppniseftirlit og það sé grunnurinn. Í öðru lagi þá þurfi að fara út í aðgerðir sem miða að því að lækka viðskiptahöft hér á landi, lækka ofurtollana og breyta stuðningskerfinu í landbúnaði. Í því séu svo tvær leiðir. Annars vegar að fara út í einhliða lækkun á viðskiptahöftunum og hins vegar að fara út í gagnkvæma lækkun á viðskiptahöftum. Í Evrópusambandinu eru breytingar á landbúnaðarstefnu og byggðastefnu gerðar samhliða og telur Aðalsteinn þá leið geta hentað Íslendingum vel. Í Nýja Sjálandi var farin önnur leið en þar voru gerðar voru mjög rótækar breytingar á landbúnaðarstefnunni á stuttum tíma sem gafst fljótt vel. En er möguleikli að hér verið farin sama leið og í Nýja Sjálandi og allir tollar verði afnumdir á einu bretti ? Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir að það verði ekki gert, það liggi ljóst fyrir. Hins vegar sé ætlunin að forsætiðsráðherra skipi sérstaka nefn til þess að fjalla um matvöruverðið og til að fara ofan í þessa hluti alla saman á breiðum grundvelli og móta tillögur um það hvernig hægt sé að lækka matvöruverð hér á landi. Forstöðumaður rannsóknarseturs verslunarinnar segir bændur fá fimmtán til sautján milljarða á ári sem felast í styrkjum og í hærra vöruverði vegna innflutningsverndar. Hins vegar sé ætlunin sú að forsætisráðherra skipi sérstaka nefnd til þess að fjalla um matvöruverð með því að fara ofan í þessa hluti alla saman á breiðum grundvelli og móti tillögur um það hvernig hægt sé að lækka matvöruverð hér á landi. Jón Þór Sturluson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar, segir að þetta jafngildi því að 70% af tekjum bænda eru í formi einhverskonar stuðnings frá skattgreiðendum eða frá neytendum í formi hærra vöruverðs. Jón Þór bendir á að það að lækka eða fella niður tolla og hækka um leið beinar greiðslur til bænda geta lækkað matvöruverð. Fyrst væri það bara tilfærsta sem myndi hækka reikning skattgreiðenda en lækka matvöruverð, en til lengri tíma yrði það hagkvæmara. Því með rétt verð mynu bændur taka skynsamari ákvarðanir, eiga auðveldra með að skipuleggja sig og sækja inn á nýja markaði. Eftir að tollar voru lækkaðir á grænmeti og styrkjum breytt óttuðust margir að innlend framleiðsla myndi hrynja. Það gerðist hins vegar ekki. Til dæmis lækkaði verð á tómötum og grænmetisbændur fundu nýjar leiðir til markaðssetningar.
Fréttir Innlent Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira