Kallar eftir þjóðarsátt um að hækka lægstu laun 5. janúar 2006 14:15
Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, kallar eftir þjóðarsátt um að hækka lægstu launin fyrir launamálaráðstefnu sveitarfélaganna sem halda á 20. janúar næstkomandi. Hann segir minni sveitarfélög ekki þola að launahækkanir verði jafnmiklar yfir alla línuna. Oddviti Samfylkingarinnar gagnrýnir bæjarstjórnina fyrir að grípa ekki strax í taumana til þess að koma í veg fyrir frekari uppsagnir á leikskólum bæjarins. Um 45 starfsmenn á leikskólum Kópavogs hafa sagt upp störfum á síðustu dögum og því ríkir töluverð óvissa um starf þeirra á næstu mánuðum. Eins og gefur að skilja hafa foreldrar miklar áhyggjur af málinu en forsvarsmenn foreldrafélaga leikskóla í bænum funduðu í gærkvöld vegna málsins og segja kjarabætur nauðsynlegar til að halda starfsfólkinu í vinnu. Flosi Eiríksson, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, gagnrýnir meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, fyrir sinnuleysi og segir Samfylkinguna hafa lagt fram tillögur að lausn vandans sem ekki hafi verið hlustað á. Hann segir tillögurnar hafa verið þríþættar. Í fyrsta lkgi hafi verið lagt til að taka upp viðræður viðp forystu Starfsmannafélags Kópavogsbæjar og Félag leikskólakennara, en það hafi einnig verið gert í haust. Þá hafi verið lagt til að starfsmenn leikskóla fengju eingreiðslur til þess að mæta því mikla álagi sem verið hafi á þeim vegna manneklu og til þess að halda í starfsmennina. Í þriðja lagi hafi verið lagt til að á síðustu vikum að hækka laun leikskólastarfsmanna til samræmis við launin í Reykjavík þannig að Kópavogur sé samkeppnishæfur um gott starfsfólk á leikskólum. Ármann Kr. Ólafson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, segir að ákvarðanir meirihlutans um að hækka lægstu laun í sveitarfélaginu standa en að sú tillaga verði ekki lögð fram fyrr en á launaráðstefnu sveitarfélaganna. Hann varar við því að launahækkanir verði jafnar yfir alla línuna. Verkefnið sé að hækkað lægstu launin þannig að kjör þess hóps batni raunverulega. Hann sé í rauninni að kalla eftir nýrri þjóðarsátt. Aðspurður hvort hann reikni með að sátt náist um málið á launamálaráðstefnu sveitarfélaganna 20. janúar segir Ármann að eftir því sem hann hafi heyrt hjjá öðrum sveitarstjórnarmönnum líti sveitarfélögin á þetta sem verkefni sitt. Flosi segir hins vegar að það sé enginn tími til að bíða með málið í Kópavogi. Það hafi verið viðvarandi vandi á leikskólum bæjarins í allt haust. Auk þess viti enginn hvað gerist eftir launamálaráðstefnuna og hún ákveði ekki hvernig Kópavogsbúar eyði peningum sínum. Það sé bæjarstjórnin sem geri það.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira