Rammíslensk rödd ráðherrans Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar 20. desember 2006 16:30 Frumraun Guðna í þularmennskunni tókst afbragðs vel þó ekki geri hann ráð fyrir að leggja þetta fyrir sig í framtíðinni. „
Já, hélstu kannski að einhver væri að herma eftir mér?“ spyr Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra. Margir þeir sem fylgdust með heimildarmynd Egils Eðvarðssonar um ferð Frummanna til Bandaríkjanna, til að taka upp plötu sína, í Ríkisútvarpinu á mánudagskvöld, ráku upp stór eyru þegar þulurinn tók til máls. Kunnugleg rödd en úr allt öðru samhengi. Svo kunnugleg að ekki fór á milli mála hver las. Þar var Guðni lifandi kominn. „Já, þeir vildu rammíslenska rödd til að túlka ferðalag Frum-manna vestur um haf. Þeir leituðu bara til mín og ég vildi gera þetta fyrir þá. Þjóðarsnillingar miklir og ég lét á þetta reyna.“ Guðni segist vera aðdáandi Stuðmanna, reyndar var ekki betur að heyra en Guðna þætti þessi spurning hin sérkennilegasta. „Þetta eru snillingar. Eilífðarsnillingar. En, já, þetta er frumraun mín á þessu sviði,“ segir Guðni. Ráðherra gerir ekki ráð fyrir því að hann muni leggja þularstörf fyrir sig í framtíðinni þó vel hefði til tekist. „Jújú, það er kannski ágætt að eiga einhverja öryggisbáta. Ég gat ekki neitað þessum ágætu drengjum um að verða við þessari furðulegu bón. En mér fannst þetta skemmtilegt verkefni.“ Textinn sem Guðni las var tekinn upp í Efstaleiti. Og ekki höfðu þeir Frummenn fyrir því að bjóða ráðherra borgun fyrir starfið. „Nei, þeir nefndu ekki peninga. Og ég spurði ekki um peninga.“
Mest lesið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Lífið samstarf Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Lífið Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Lífið Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri Menning Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Lífið samstarf „Er ég ekki nóg nema ég sé í gervi einhvers annars?“ Menning Heitur Teitur selur Lífið Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Lífið Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Lífið Fleiri fréttir Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Bjössi í Mínus er ný rödd Sýnar Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Skvísaðu þig upp fyrir íslenska sumarið Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Átta ára meðgöngu loksins að ljúka Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Stjörnulífið: Sjóðheit og löng helgi Sly Stone er látinn Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Máli Baldoni vísað frá Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Nefndirnar sem smíða orðin: Lýðnetið víkur fyrir internetinu og þjarki fyrir bóta Að eiturefnum sé dreift úr flugvélum yfir fólk Sjá meira