Enn á neyslufylleríi þrátt fyrir viðvörunarbjöllur 10. apríl 2006 19:00
Vöruinnflutningur jókst um ríflega þriðjung, í krónum talið, í síðasta mánuði. Hluti skýringarinnar liggur í lækkun krónunnar, en að sama skapi má ætla að þrátt fyrir viðvörunarbjöllur sé þjóðin enn á neyslufylleríi. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum um innheimtu virðisaukaskatts var vöruinnflutningur í mars í kringum 33 milljarða króna. Þetta er töluverð aukning milli mánaða en í febrúar var innflutningur um 22 milljarðar króna. Ef tölurnar reynast réttar er aukningin rúm 36%. Það má velta því fyrir sér hvort Íslendingar hafi átt fyrir þessu eða keypt út á krít, þrátt fyrir vaxtahækkanir sem notaðar hafa verið til að slá á puttana á hinum kaupglöðu. Í vefriti Fjármálaráðuneytisins segir að þótt um verulega magnaukningu sé að ræða eigi lækkun á tollgengi krónunnar sinn þátt í auknu innflutningsverðmæti milli mánaða en gengið veiktist um tæp 5% vegna innflutnings í mars. Gera má ráð fyrir að það taki nokkra mánuði fyrir gengislækkunina að hafa áhrif á magnstærðir innflutnings en jafnan eru neysluvörur og bifreiðar sérlega næmar fyrir gengissveiflum og má því vænta minni aukningar innflutnings í þeim liðum á næstu mánuðum. Annað sem kemur til er aukning í innflutiningi á eldsneyti en sá liður er afar sveiflukenndur. Verðmæti eldsneytisinnflutnings var mjög mikið í mars og koma þar saman gengislækkun og hækkandi eldsneytisverð á heimsmörkuðum. Innflutningur var einnig mikill á fjárfestingar- og rekstrarvörum eins og raunin hefur verið síðustu misseri en það stafar að mestu af fjárfestingum í stóriðju.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Sjá meira