Samskip og Safari Transport sameina krafta sína 10. apríl 2006 10:31
Samskip og færeyska flutningsmiðlunin Safari Transport hafa sameinað krafta sína. Skrifað var undir viljayfirlýsingu um kaup Samskipa á 50% hlut í færeyska félaginu í Þórshöfn fyrir helgi. „Safari Transport er leiðandi flutningsmiðlun með 6 starfsmenn og eru kaupin liður í því að styrkja enn frekar markaðsstöðu okkar í Færeyjum og efla þjónustuna þar almennt við viðskiptavini okkar,“ segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa. Tvö ár eru um þessar mundir frá því Samskip hófu siglingar að nýju til og frá Færeyjum. Mikill uppgangur hefur einkennt starfsemina og stefna stjórnendur Samskipa að því að ná sömu markaðshlutdeild í Færeyjum og félagið er með á Íslandi. Samskip hafa nú viðkomu tvisvar sinnum í viku í Færeyjum, í Þórshöfn og Klakksvík, á siglingaleiðinni milli Íslands, Bretlandseyja og meginlands Evrópu. Þá keypti félagið á liðnu ári frystigeymslu Kloosterboer í Kollafirði og nú bætist við helmingshlutur í Safari Transport. Samstarfið styrkir einnig verulega stöðu Safari Transport því viðskipavinir geta nýtt sér þjónustu Samskipa, hvort sem er í Evrópu, Asíu eða Bandaríkjunum. Samskip eru nú með 55 skrifstofur í 22 löndum í þessum þremur heimsálfum, auk þess sem umboðsaðilar eru um allan heim. Starfsmenn Samskipa í Færeyjum voru níu talsins, fjórir á skrifstofu félagsins í Þórshöfn og fimm í Kollafirði, og eru því orðnir 15 talsins eftir kaupin á Safari Transport. Alls eru starfsmenn Samskipa um 1.400 talsins, þar af um 700 á Íslandi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira