Jói og Gugga í heilagt hjónaband 13. desember 2006 13:45 Jói og Gugga gengu í heilagt hjónaband um síðustu helgi. Vegleg veisla var haldin í Tæknigarði. „
Þetta var mjög fallegt allt saman. Brúðkaupið var fallegt og veislan á eftir ekki síðri," segir sjónvarpsmaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson í Kompási. Á laugardaginn síðasta gengu þau Jóhann Traustason og Guðbjörg Inga, unnusta hans, í heilagt hjónaband. Landsmenn þekkja þau skötuhjúin eflaust betur undir nöfnunum Jói og Gugga, en þau hafa verið fastagestir í sjónvarpsþættinum Kompási á Stöð 2 síðasta árið. Þar hafa sjónvarpsáhorfendur getað fylgst með þeim berjast við eiturlyfjafíkn sína. Síðast þegar fréttist af Jóa og Guggu höfðu þau farið í meðferð og bjuggu í húsnæði á vegum Krossins. Það var einmitt Gunnar Þorsteinsson í Krossinum sem gaf þau saman. „Það voru reyndar ekki margir gestir í brúðkaupinu en þetta var góðmennt. Kompás var að sjálfsögðu á staðnum, enda var þetta stór stund í lífi þeirra Jóa og Guggu," segir Jóhannes Kr. Hann fæst ekki til að upplýsa hvernig Jóa og Guggu hafi gengið að berjast við eiturlyfjafíkn sína að undanförnu, segir að það komi í ljós í næsta þætti sínum. En hvað gaf Jóhannes og Kompásfólkið vinum sínum í brúðkaupsgjöf? „Við erum nú ekki enn búin að gefa þeim brúðkaupsgjöf en við munum færa þeim alla þættina sem þau hafa verið í á diskum fljótlega," segir Jóhannes. Eftir að Gunnar Þorsteinsson hafði gefið brúðhjónin saman var haldin vegleg veisla í Tæknigarði. „Það var fólk sem gaf þeim veisluna. Eftir að það sá síðasta þátt ákvað það að hjálpa þeim Jóa og Guggu. Mjög fallegt af þeim," segir Jóhannes Kr. Kristjánsson. Jói og Gugga staðfestu ást sína í Krossinum. . Gunnar Þorsteinsson í Krossinum gaf þau Jóa og Guggu saman. .
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum bannað að hanga í stiganum Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira