Good Morning America beint frá Jökulsárlóni 20. október 2006 13:00 kynnar good morning america Þær Robin Roberts og Diane Sawyer eru nú aðalkynnar, en Charles Gibson og Tony Perkins hafa snúið sér að öðru. MYND/Getty
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins dveljast útsendarar frá hinum feikivinsæla morgunþætti ABC-sjónvarpsstöðvarinnar, Good Morning America, hér á landi þessa dagana í því skyni að undirbúa beina útsendingu frá Jökulsárlóni sem fara mun fram í nóvember. Útsendingin frá Íslandi verður liður í vikulöngu ferðalagi þáttarins, en hann mun verða sendur út frá sex öðrum löndum í sömu viku. Á Íslandi ætla þáttastjórnendur að fjalla um gróðurhúsaáhrifin og hnattræna hitun. Tökuliðið sem statt er hér um þessar mundir sér um rannsóknarvinnu fyrir þáttinn, en þeirra á meðal er Morgan Zalkin sem hefur yfirumsjón með framleiðslu sérstakra innslaga fyrir Good Morning America. Það verður hins vegar væntanlega Sam Champion, veðurfræðingur þáttarins, sem verður aðalandlitið í beinu útsendingunni í nóvember. Heimildir Fréttablaðsins herma að tökuliðið frá Good Morning America hafi varið miðvikudeginum í viðræður við íslenska vísindamenn. Um kvöldið skelltu þau sér hins vegar í draugagöngu um miðbæinn, en þær virðast njóta mikilla vinsælda. Áhugi Jónasar Freydal Þorsteinssonar, umsjónarmanns göngunnar, á umhverfismálum virtist vekja athygli tökuliðsins, en í göngunum les hann meðal annars ákall frá álfum þess efnis að landið sé varðveitt. Tökuliðið ku þó hafa verið á höttunum eftir skemmtilegu efni til að krydda útsendinguna með, og alls óvíst hvort efni úr draugagöngunni yrði notað. Good Morning America hefur áður verið með beina útsendingu frá Íslandi, en fyrir níu árum var þátturinn sendur út frá Austurvelli og Bláa lóninu. Um fimm milljónir manna horfa á þáttinn á degi hverjum og er því um umtalsverða landkynningu að ræða. Hvort hún verður góð eða slæm er þó enn óljóst.
Menning Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Laufey á landinu Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Fleiri fréttir Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Sjá meira