Vinna að Ameríkudraumnum 15. desember 2006 17:15 Magnús Ágústsson. Helmingur hljómsveitarinnar stefnir í atvinnuflugnám eftir áramót og svo er stefnt á Bandaríkin.
Hljómsveitina Búdrýgindi ættu allir að kannast við, en þeir unnu Músíktilraunir árið 2002, einungis 15 ára gamlir. Í dag standa strákarnir á tímamótum því þeir útskrifast allir úr menntaskóla núna um jólin. Á döfinni er að taka upp ný lög og svo er á teikniborðinu að reyna „meika það“ í Ameríku undir nýju nafni. „Ég er á góðri leið með að verða helköttaður,“ segir Magnús Ágústsson, söngvari hljómsveitarinnar Búdrýgindi, en hann var nýkominn úr tækjasalnum þegar blaðamaður náði sambandi við hann. Búdrýgindi sigruðu Músík-tilraunir Tónabæjar árið 2002 og gaf hljómsveitin út í því framhaldi diskinn Kúbakóla en þá voru drengirnir aðeins 15 ára gamlir. Tveimur árum seinna kom svo skífan Juxtapose og nú síðast í sumar tilkynntu þeir áætlanir um að reyna fyrir sér í Bandaríkjunum, undir nafninu Showdown Clown. „Tónlistin hefur fengið að sitja á hakanum í haust, en við erum allir svo uppteknir við að klára skólann,“ segir Magnús en allir fjórir meðlimir Búdrýginda útskrifast úr Menntaskólanum við Hamrahlíð núna um jólin, sem er kannski ekki merkilegt nema fyrir þær sakir að allir útskrifast hálfu ári áður en eðlilegt þykir. Magnús neitar því ekki að meðlimir hljómsveitarinnar séu miklir námsmenn en hann og Axel Haraldsson, trommuleikari sveitarinnar, eru báðir með einkaflugmannspróf í ofanálag. „Svo í febrúar ætlum við að fara í einkaflugmannsnám. Við ætlum samt ennþá að verða rokkstjörnur þegar við verðum stórir, bara flug-stjörnur eins og John Travolta og Bruce Dickinson.“ Stefnan hefur verið tekin á upptökuver um hátíðirnar til þess að taka upp nýtt efni og segir Magnús að jafnvel ætli þeir um leið að taka upp enska útgáfu af sínum gömlu lögum. „Við erum að vinna í þessum Ameríkudraumi og aðstoð væri vel þegin, okkur vantar til dæmis umboðsmann og enn fleiri tengiliði,“ segir Magnús og bætir því við að hljómsveitin vilji ólm hita upp fyrir Incubus sem spilar í Reykjavík eftir áramót. „Svo í janúar verður hljómsveitin níu ára og á næsta ári verðum við akkúrat búnir að vera í bandinu helming ævi okkar,“ en strákarnir hófu að spila saman þegar þeir voru aðeins tíu ára gamlir. Búdrýgindi Klára allir stúdentspróf um jólin, hálfu ári á undan áætlun. .
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Lífið Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Lífið Britney farin í meðferð Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira