Mínúturnar á milljónir króna 25. júní 2006 19:19
Það eru Íslendingar sem framleiða það efni sem selst hraðast í heiminum í dag. Í grein danska blaðsins Politiken er fjallað ítarlega um Latabæjarþættina og sagt að það kosti sextíu og tvær milljónir að framleiða hvern þátt, eða tvær komma sex milljón krónur mínútan. Íslensk eróbikstjarna selur gulrætur og góða siði í sjónvarpsþætti fyrir börn, þannig er Latabæjarþáttunum lýst í blaðagrein danska blaðsins Politiken sem birtist á föstudaginn. Þar er fjallað ítarlega um þættina og sagt að þeir séu það barnaefni sem seljist hraðast í heiminum í dag. Þættirnir hafa verið teknir til sýninga í nítíu og sex löndum og í ágúst bætast við Danmörk og Finnland. Hópur fjölmiðlafólks kom fyrir stuttu frá Norðurlöndunum hingað til lands til að kynna sér framleiðslu þáttanna. Áhugi erlendra blaðamanna á þáttunum hefur verið að aukast mjög og í fyrra kom meðal annars til landsins fjölmiðlafólk frá Suður-Ameríku en þættirnir hafa notið mikilla vinsælda þar. Í grein Politiken er þáttunum lýst þannig að þeir séu byggðir upp á pólitískri rétthugsun og margt uppbyggilegt megi finna í þeim Í greinninni er jafnframt sagt að kostað hafi eitt hundrað og sjötíu milljónir danskra króna að framleiða fyrstu þrjátíu og fimm þættina af Latabæ. Þetta samvarar tveimur komma tveimur milljörðum íslenskra króna. Sem þýðir að framleiðslukostnaður við hvern þátt hafi verið sextíu og tvær milljónir króna og hver mínúta hafi því kostað tvær komma sex milljónir króna. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja tölurnar líklega heldur of háar. Nær lagi sé að heildarkostnaður sé einn komma sjö milljarðar króna. Sem þýðir að hver þáttur kostar fjörtíu og níu milljónir króna í framleiðslu og hver mínúta tvær milljónir. Hafa ber í huga að um er að ræða fyrstu þættina og því ákveðinn byrjunarkostnaður sem fylgir. Áhugasamir Danir fá svo tækifæri til að fylgjast með íþróttaálfinum, Sollu stirðu og öllum hinum á sjónvarpsstöðinni TV 2 í ágúst Unnið er nú að framleiðslu átján nýrra þátta og lýkur upptökum á þeim í ágúst.
Fréttir Innlent Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Banna búrkur og níkab Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Sjá meira