Menntaskemmtigarður í Laugardalnum 18. maí 2006 15:57
Í dag var undirritaður samningum um þróun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Reykjavíkurborg hefur breytt deiliskipulagi Laugardalsins og eru framtíðarplönin sú að standa fyrir uppbyggingu á svæðinu sem miðar að því að byggja upp svæði sem verði einskonar "menntaskemmtigarður" en þetta kemur fram í tilkynningu frá Húsdýragarðinum. Á nýja svæðinu sunnan garðsins sem þessi þróunarsamningur fjallar um er gert ráð fyrir að rísi hús sem hýsi vísindagarð, sjávardýrasafn, Imax sýningarhús, kvikmyndasali, fræðsluaðstöðu, starfsmannaaðstöðu, sýningarsali fyrir ýmis konar sýningar, leiksvæði, húsnæði fyrir dýr og margs konar annars konar þjónustu. Í dag er engin vafi um að Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er fjölsóttur viðkomustaður fjölskyldufólks en hingað til hafa þarfir yngstu kynslóðanna verið í brennidepli. Tillögurnar sem komnar eru fram varðandi nýtingu nýja svæðisins hafa það að markmiði að skapa kjarna í tengslum helstu staði Laugardalsins þannig að í honum myndist heildstætt svæði menntunar, skemmtunar, líkamsræktar og íþróttaviðburða og sýninga í hjarta Reykjavíkur. Svæði sem dregur að fólk á öllum aldri. Samstarfsaðilar við Reykjavíkurborg í þessu verkefni eru: Palomar Pictures í eigu Sigurjóns Sighvatssonar, Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. og Klasi hf. fasteignafélag. Þessir aðilar skiluðu sameiginlegum tilögum til Reykjavíkurborgar um þróun og uppbyggingu Menntaskemmtigarðs. Á grundvelli þeirra tillagna hefur Reykjavíkurborg ákveðið að ganga til samstarfs við þá um frekari þróun á grundvelli tillagnanna. Með þessari undirritun er stigið fyrsta skrefið í þá átt að hrinda þessum hugmyndum af stað. Stefnt skal að því að samningum um framkvæmdir, uppbyggingu og leigi sé lokið fyrir janúarlok 2007 enda liggi þá fyrir samþykkt skipulag.
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Sjá meira