Ríkið græðir á bensínhækkunum 17. júlí 2006 18:54
Essóstöðvarnar riðu á vaðið í morgun og hækkuðu verð á bensíni. Hinar stöðvarnar hafa nú fylgt á eftir og kostar lítrinn tæpar 133 krónur í sjálfsafgreiðslu. Framkvæmdastjóri FÍB segist óttast frekari hækkanir. Olíufélagið Essó hækkaði verð á bensínlítra um þrjár krónur og og áttatíu aura í morgun og kostar þá lítrinn í sjálfsafgreiðslu 132 krónur og 80 aura. Verð á díselolíu var einnig hækkað um tvær krónur. Bensínstöðvarnar virðast hafa beðið í lengstu lög með að hækka bensínverðið, en miklar hækkanir hafa verið á olíu erlendis. Samkvæmt upplýsingum frá Runólfi Ólafssyni, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, hefur útsöluverð á bensíni aldrei verið hærra. Verð á olíutunnu í dollurum er einnig með því hæsta sem verið hefur, en í nokkra daga í haust var bensínverð hærra en nú í dollurum talið. Hagstætt gengi gerði það hins vegar að verkum að bensínverð á íslandi var lægra en það er nú. Runólfur segist hissa á að stjórnvöld hafi ekki gripið til neinna aðgerða til að verja neytendur fyrir þessum gríðarlegu hækkunum. Ríkið leggi virðisaukaskatt á bensín og því hafi stjórnvöld grætt á hækkun bensínverðs. Með endurskoðun á skattlagningu og olíugjöldum gæti ríkisstjórnin lækkað bensínverð og með því vísitölu neysluverðs og verðbólguna. Stærstu bensínstöðvarnar hafa nú hækkað verð á bensíni til jafns við Essó, bæði Shell og Olís. Bensínlítrinn fæst þó enn á tæpar 128 krónur hjá Atlantsolíu, Orkunni og ÓB bensíni.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira