Innlent

Segir úrskurð ekki í samræmi við fyrri úrskurð samkeppnisyfirvalda

Forstjóri Dagsbrúnar undrast úrskurð Samkeppniseftirlitsins, sem hefur úrskurðað að samruni félagsins við afþreyingarfyrirtækið Senu sé ólöglegur. Hann segir úrskurðinn ekki í samræmi við fyrri úrskurð samkeppnisyfirvalda. Úrskurðinum verður áfrýjað til áfýjunarnefndar samkeppnismála.

Fram kemur í úrskurði Samkeppniseftirlitsins að samruni Dagsbrúnar, sem rekur meðal annars NFS, og Senu hindri virka samkeppni þar sem markaðsráðandi staða beggja fyrirtækja á mörkuðum fjölmiðlunar og afþreyingar styrkist með samrunanum.

Þá benda samkeppnisyfirvöld á að Baugur fari í skilningi samkeppnislaga með yfirráð í Dagsrún í ljósi hlutafjáreignar sinnar og tengdra aðila. Baugur ráði einnig yfir Högum en Sena og Hagar starfi að hluta til á sama markaði, það er tónlistar og tölvuleikjamarkaði. Þá hafi Dagbrún yfirburðastöðu á áskriftarsjónvarpsmarkaði.

Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir markað Senu og Dagsbrúnar aðeins skarast að litlu leyti og hægt hefði verið að leyfa samrunann með litlum skilyrðum. Hann bendir enn fremur á að í forsendum Samkeppniseftirlitsins komi fram að Stöð 2 starfi á markaði sem sé teiknaður í kringum stöðina og það gangi þvert á úrskurð Samkeppnisstofnunar frá árinu 2000 þar sem talið var að Stöð 2 og RÚV kepptu á sama markaði.

Þá hafnar Gunnar Smári því að Dagsbrún sé undir beinni stjórn Baugs. Það standist ekki því félagið sé skráið í Kauphöll Íslands og ef Baugur stjórnaði öllu hjá Dagsbrún væri yfirtökunefnd væntanlega búin að taka Dagsbrún af markaði.

Dagsbrún hyggst skjóta úrskurði Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og ef hún kemst að sömu niðurstöðu ganga kaup félagsins á Senu til baka.

Baugur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem því er hafnað að félagið fari með yfirráð í Dagsbrún. Hlutur Baugs sé 31 prósent og ekki um frekari hlutafjáreign að ræða. Þá segja forsvarsmenn Baugs að félaginu hafi ekki verið veittur andmælafrestur í málinu og að niðurstaðan verði kærð til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×