Öryggisreglum í sundlauginni ábótavant 28. júní 2006 12:30 Hlúð að sundlaugargestum á Eskifirði í gær. MYND/Helgi G.
Líðan þeirra sem urðu fyrir eitrun í klórgasslysinu í sundlauginni á Eskifirði í gær er eftir atvikum. Vinnueftirlitið segir öryggisreglum í sundlauginni hafa verið ábótavant. Vinnueftirlitið, lögregla og fleiri vinna enn að rannsókn mengunarslyssins á Eskifirði í gær þegar eitrað gas náði til sundlaugargesta og um þrjátíu veiktust. Líðan þeirra fjögurra, sem fluttir voru á slysadeild Landspítalans í Reykjavík, og þeirra tveggja, sem fluttir voru til Akureyrar, er eftir atvikum. Þrjú börn voru á meðal þeirra sem flutt voru til Reykjavíkur og að sögn vakthafandi læknis eru þau ekki í hættu. Þá dvöldu átján manns á sjúkrahúsinu í Neskaupsstað í nótt þar sem fylgst var með líðan þeirra til öryggis. Víðir Kristjánsson, efnafræðingur hjá Vinnueftirlitinu, fór austur í gærdag og kom aftur í bæinn skömmu fyrir hádegi. Hann segir ljóst að þarna hafi orðið mannleg mistök. Efni, sem ekki eigi að fara í sundlaugar, fór í klór og við það myndast klórgasið. Víðir segir liggja fyrir að Olís hafi afgreitt rangt efni, en þó sé ekki ljóst hvort mistökin hafi verið gerð í Reykjavík eða annars staðar. Þrátt fyrir það hafi átt að athuga efnið áður en það var sett í sundlaugina. Það er samdóma álit þeirra sem gegndu lykilstöðum í aðgerðunum í gær, að þær hafi gengið eins og best verði á kosið. Einnig þykir það mikið lán hversu sundlaugargestir voru fljótir að átta sig á hættunni og forða sér og því hafi ekki farið verr en raunin varð. Víðir segir að Vinnueftirlitið muni fara yfir öryggisatriði í sundlauginni og gera kröfu til þess að þeim verði kippt í lag.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum Innlent Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Innlent Fleiri fréttir Segir nýtt að makinn sé tekinn á beinið Áformin séu það eina í stöðunni vegna neyðarástands Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Sjá meira