Þjónar best hagsmunum fyrirtækisins að gefa ekki upp orkuverð 26. júní 2006 17:50
Stjórn Landsvirkjunar ákvað á fundi sínum í dag að raforkuverð til Alcoa verði ekki gert opinbert. Stjórnin telur það þjóna best hagsmunum fyrirtækisins að orkuverð fáist ekki gefið upp. Helgi Hjörvar ætlar að taka málið upp á Alþingi. Þau Helgi Hjörvar og Álfrún Ingadóttir, sem sitja í stjórn Landsvirkjunar, lögðu fram tillögu í dag á stjórnarfundi þess efnis að trúnaðarskyldu á raforkuverði til Alcoa verði aflétt. Ástæðan voru ummæli forstjóra Alcoa sem sagði fyrirtækið hafa greitt helmingi hærra verð fyrir raforku til álvers í Brasilíu en hér á landi. Hann hefur síðan sagt að hann hafi farið með rangt mál. Stjórn Landsvirkjunar felldi tillöguna á fundi sínum í dag og raforkuverð sem Alcoa greiðir til Landsvirkjunar verður því ekki gert opinbert. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir afstöðu stjórnar þá að fyrirtækið nái betri samingum ef trúnaðarskyldan er fyrir hendi. Aðspurður um hvort til greina komi að aflétta leyndinni á einhverjum tímapunkti segir hann allt koma til greina en ákvörðun um að aflétta trúnaðarskyldunni verði að taka í stjórn. Nú gildi reglur í stjórninni sem gilt hafa frá árinu 1995. Ef stjórnin telji á einhverjum tímapunkti það koma fyrirtækinu betur að gefa upp verð þá verði það gert en nú telji meirihluti stjórnar þá stöðu ekki fyrir hendi. Þrátt fyrir trúnaðarskylduna gat Friðrik sagt að það verð sem Alcoa myndi greiða í dag ef verið væri að selja þeim samkvæmt samningnum vera um þrjátíu dollarar á megawattið eða tæpar tvö þúsund og þrjúhundruð íslenskar krónur. Helgi Hjörvar segir Alcoa í raun hafa aflétt trúnaði með yfirlýsingum sínum. Helgi segir best að birta verðið svo að allir geti komsti að efnislegri niðurstöðu og viti hvað sé rétt í málinu. Helgi hyggst leggja til að málið verði rætt í sölum Alþingis.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Sjá meira