Innlent

Stjórn dvalarheimilisins Höfða braut ekki jafnréttislög

Kærunefnd jafnréttismála hefur kveðið upp þann úrskurð að stjórn Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi hafi ekki brotið jafnréttislög með ráðningu Guðjóns Guðmundssonar, fyrrverandi alþingismanns, í starf framkvæmdastjóra heimilisins á síðasta ári. Fréttavefurinn Skessuhorn greinir frá því að Brynja Þorbjörnsdóttir, sem einnig sótti um starfið, vísaði málinu til kærunefndar jafnréttismála. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að kynferði hefði ekki haft áhrif á ráðninguna, en þrátt fyrir að Brynja hafi meiri menntun þá búi Guðjón yfir meiri starfsreynslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×