Ráðuneytið skiptir sér ekki af málum Tómasar Zoega 21. júní 2006 17:38
Að sögn ráðuneytisstjóra Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins skiptir ráðuneytið sér ekkert af ráðningarmálum Landspítala háskólasjúkrahúss og starfsmannaráðningar er ekki hægt að kæra til ráðuneytisins. Það er því ljóst að Heilbrigðisráðuneytið mun hvorki taka afstöðu né ákvörðun í málum Tómasar Zoega, sem hyggst nú höfða skaðabótamál á hendur Landspítala vegna þess að hann var færður úr starfi yfirlæknis á Geðdeild Landspítalans.Magnús Pétursson, forstjóri Landsspítala Háskólasjúkrahúss, segir starfsmannastefnu Landsspítalans enn þá sömu og áður: að yfirlæknar vinni ekki utan spítalans, nema í undantekningartilvikum eins og ef þeir taka að sér háskólakennslu eða nefndarsetu í öðrum opinberum stofnunum. Þetta sé gert til þess að hindra hagsmunaárekstra sem annars væru mögulegir.Að mati lögfróðra manna á vegum Landspítalans breytir úrskurður Hæstaréttar engu um starfsmannastefnu spítalans, - enda tekur Hæstiréttur enga afstöðu til hennar, heldur byggist dómurinn á lagatæknilegum atriðum varðandi uppsögnina sjálfa. Landspítalinn mun því áfram fylgja sömu forsendum við ráðningu yfirlækna, undantekningalaust. Þó tekur Magnús fram að tímabundnar tilslakanir hafi verið gerðar, oft á þá lund að nýráðnum yfirlæknum hafi verið gefinn þriggja til sex mánaða frestur til að draga sig út úr öðrum störfum utan spítalans.Að því er fram kemur í opnu bréfi yfirstjórnar Landspítalans til Tómasar, hefur honum verið boðin yfirlæknis á ný með því skilyrði að hann selji læknisstofu sína og hætti að vinna annars staðar, en þetta eru þau skilyrði sem Tómas vildi ekki sætta sig við í upphafi sem urðu loks til þess að hann var færður úr stöðu yfirlæknis.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Sjá meira