Reyna að fjarlægja plötu stærstu fallbyssu El Grillo 19. júní 2006 17:52
Hópur kafara er nýkominn úr leiðangri sem farinn var að flaki skipsins El Grillo á botni Seyðisfjarðar, til að reyna að koma botnplötu stærstu fallbyssu skipsins á þurrt. Svo virðist sem engin olía leki lengur úr skipinu. El Grillo var olíubirgðaskip bandamanna í seinni heimstyrjöld. Eftir árás þýskra orustuflugvéla á skipið í febrúar 1944 úti fyrir Seyðisfirði tóku Bretar ákvörðun um að sökkva því. Og þar liggur nú skipið á um 40 metra dýpi. El Grillo er engin smásmíði, eða um 11.000 tonn. Til samanburðar er Víkartindur, sem strandaði undan suðurströnd landsins fyrir nokkrum árum, 9.000 tonn. Skipið er 136 metrar að lengd og um 20 metra breitt. Árni Kópsson kafari, sem margoft hefur kafað að flakinu, segir það alltaf jafn góða tilfinningu. Að koma „svífandi að því" og sjá það birtast smátt og smátt. Hann neitar því þó ekki að skipið er nokkuð „spúkí", eða draugalegt, á að líta þarna á hafsbotninum. Árni og félagar vinna að því að koma stærstu fallbyssu El Grillo á þurrt. Fyrir tveimur árum fjarlægðu þeir hlaup og fót byssunnar en nú er komið að botnplötunni, sem er engin smásmíði: um meter í þvermál og tíu sentimetrar á þykkt, og telur Árni að þessi stálhlunkur vegi a.m.k. tonn. Platan er fest með tæplega þrjátíu boltum og hafa þeir félagar náð að losa flesta þeirra. Hins vegar vannst ekki tími til að ljúka verkinu að þessu sinni en Árni vonast eftir því að komast í það annað hvort seinna í sumar, eða að ári liðnu. Umhverfisráðuneytið stóð fyrir hreinsun á olíu úr tönkum skipsins fyrir nokkrum árum. Þó var ekki talið víst að með því hafi verið komið í veg fyrir allan leka úr skipinu. Árni segir þá félaga ekki hafa komið auga á neina olíu, en þar sem skyggnið hafi ekki verið eins og best verði á kosið sé ekki hægt að fullyrða að engin olía leki lengur úr skipinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Kom ekki á teppið Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Erlent Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Innlent Fleiri fréttir Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar Sjá meira