Innlent

Nýtt íslenskt símafélag hefur tilraunarekstur á netinu í haust

Mynd/AP

Nýtt íslenskt símafélag í eigu Novators fjárfestingafélagsins, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar ætlar að hefja tilraunarekstur á netinu hér á landi í haust.

Að sögn Morgunblaðsins verður þetta svonefnd þriðja kynslóð farsímakerfa á borð við það sem Novator er að byggja upp í Tékklandi, Búlgaríu og Póllandi. Það er þráðlaust háhraðasímnet og gefur meðal annars möguleika á að horfa á sjónvarp í farsíma. Hið nýja félag hefur þegar fengið leyfi Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir tilteknu tíðnisviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×