Innlent

Uppselt á Hróarskeldu

Frá tónleikum Mugisons á Hróarskeldu í fyrra. Hljómsveitin Sigur Rós verður fulltrúi Íslendinga á Hróarskeldu þetta árið, ekki í fyrsta skipti.
Frá tónleikum Mugisons á Hróarskeldu í fyrra. Hljómsveitin Sigur Rós verður fulltrúi Íslendinga á Hróarskeldu þetta árið, ekki í fyrsta skipti. MYND/Kristján Sigurjónsson
Uppselt er á tónlistarhátíðina vinsælu í Hróarskeldu í Danmörku, sem haldin verður dagana 29.júní til 2.júlí. 75 þúsund miðar voru seldir á hátíðina og þar af rúmlega þúsund á Íslandi og er það sölumet fyrir miða á Íslandi. Þá eru ótaldir miðar Íslendinga sem keyptir eru í útlöndum eða í gegnum netið. Það er því ljóst að það verður talsverður fjöldi Íslendinga á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×