Hjólamennirnir komnir heim 14. júní 2006 17:52
Fjórum veðurbörnum slökkviliðsmönnum var fagnað innilega við komuna heim til Reykjanesbæjar í dag, eftir að þeir höfðu hjólað hringinn í kringum landið til styrktar Umhyggju, félags foreldra langveikra barna. Mennirnir höfðu þá hreppt öll veður sem boðið er upp á á Íslandi í júní. Í morgun lögðu þeir upp frá Borgarnesi en sóttist ferðin seint því undir Hafnarfjallinu náðu vindhviðurnar 35 metrum á sekúndu og feyktust mennirnir því eins og lauf í vindi og endasentust ítrekað út fyrir veginn. Út af veðri fengu þeir undanþágu frá lögreglunni og fengu að hjóla í gegnum Hvalfjarðargöngin, en reiðhjólaumferð er að öllu jöfnu stranglega bönnuð þar í gegn. Ekki tók betra við undir Esjunni, þar voru líka sterkar vindhviður. Mennirnir fengu hressingu hjá kollegum sínum á slökkvistöðinni í Hafnarfirði og þar bættust fjórir í hópinn til að hjóla með þeim síðustu kílómetrana. Þar á meðal var leikarinn Pálmi Gestsson, en sonur hann Gestur Pálmason, er meðal hjólagarpana fjögurra sem lokuðu hringnum í dag. Enn er hægt að leggja inn á bankareikning söfnunarátaksins og er reikningsnúmerið 1109-05-411115 og kennitalan 610269-3389. Yfir tvær milljónir hafa safnast inn á reikninginn og hafa fyrirtæki og einstaklingar víða um land falið hjólreiðamönnunum fjárframlög á ferð þeirra um landið. Söfnunin stendur fram á laugardaginn 17. júní en þá verður söfnunarféð afhent við hátíðlega athöfn.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira