Mótmæla fyrirhuguðum hrefnuveiðum 14. júní 2006 17:01 MYND/Sigurður Bogi
Hvalaskoðunarsamtök Íslands mótmæla harðlega þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að leyfa veiðar á 50 hrefnum hér við land á þessu ári. Greint var frá þessari ákvörðun sjávarútvegsráðherra í gær og eiga veiðarnar að hefjast á næstu dögum. Þær eru liður í hvalarannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunar sem lögð var fyrir vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins árið 2003. Síðan þá hafa um eitt hundrað hrefnur verið veiddar yfir sumartímann en áætlunin gerði ráð fyrir veiðum á 200 hrefnum, 200 langreyðum og 100 sandreyðum. Hvalaskoðunarsamtök Íslands sendu frá sér tilkynningu í dag þar sem þau lýsa yfir hörðum mótmælum sínum við fyrirhuguðum veiðum í sumar. Samtökin mótmæla jafnframt fullyrðingu Hafrannsóknarstofnunar að þessi ákvörðun sé í samræmi við hvalarannsóknaráætlun Hafró. Staðreyndin sé nefnilega sú að hvorki langreyðar né sandreyðar hafi verið veiddar samkvæmt þeirri áætlun, og aðeins örfáar hrefnur á ári. Það sé því rangt að halda því fram að þessar veiðar séu í samræmi við þær tillögur sem lagðar voru fyrir vísindanefnd Alþjóða hvalveiðiráðsins. Þar fyrir utan hafi tillögurnar aldrei verið samþykktar af vísindaráðinu, né af alþjóða hvalveiðiráðinu. Hvalaskoðunarsamtökin árétta jafnframt að Samtök Ferðaþjónustunnar og aðalfundir Ferðamálaráðs hafi ítrekað mótmælt hvalveiðistefnu stjórnvalda og farið þess á leit að sú stefna verði endurskoðuð, enda liggi fyrir að veiðarnar hafi þegar skaðað eina vinsælustu afþreyingargrein íslenskrar ferðaþjónustu, hvalaskoðun, með beinum hætti.
Fréttir Innlent Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira