Innlent

Þrjú grjóthrun á Óshlíðarveg

Grjót hefur þrisvar sinnum hrunið á Óshlíðarveg á rúmum sólarhring en í öllum tilvikum var enginn vegfarandi á ferð þegar skriðurnar hrundu. Stórt bjarg skemmdi vegöxl og vegrið við Krossinn í Óshlíð. Kalla þurfti út vinnuvél til að ryðja skriðu af veginum í fyrrinótt og aftur í gærdag, en ekki er vitað til að neitt hafi hrunið á veginn í nótt. Í gærkvöldi hrundi hins vegar eitthvað á Súðavíkurveginn og þurftu vegagerðarmenn að hreinsa hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×