Innlent

Stóru olíufélögin hafa öll hækkað bensínlítrann

MYND/GVA

Olíufélagið Skeljungur fylgdi í gær fordæmi Essó og hækkaði bensínlítrann um tvær krónur og fimmtíu aura. Olís varð svo hinum félögunum samstíga með hækkanir í gærkvöldi. Algengt sjálfsafgreiðsluverð hjá þessum félögum er nú tæpar 127 krónur fyrir bensínlítrann og rúmlega 121 króna fyrir dísellítrann. Ekki hefur verið jafn mikill verðmunur á bensínlítra og dísellítra í langan tíma, hvað sem veldur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×