Íslenska ríkið sýknað af kröfum Nígeríumanns sem sótti um hæli hér á landi 7. júní 2006 18:23 Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd/Valli
Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum Nígeríumanns sem sótt hafði um hæli hér á landi sem flóttamaður en umsókn hans var hafnað.Maðurinn kom til landsins í september árið 2004 frá Svíþjóð. Hann var stöðvaður við vegabréfaeftirlit á Keflavíkurflugvelli og átti þá bókað far áfram til Bandaríkjanna. Maðurinn sagðist vera á leið til Boston í heimsókn til vinar síns en vegabréfið sem hann framvísaði var ekki hans eigið. Útlendingastofnun synjaði manninum um hæli á Íslandi sem flóttamanni í mars í fyrra. Honum var einnig gert að fara úr landinu sem fyrst og var honum bönnuð endurkoma til Íslands í þrjú ár. Maðurinn telst einnig óæskilegur á Schengen svæðinu frá dagsetningu brottvísunnarinnar næstu þrjú árin. Dómsmálaráðuneytið staðfesti þessa niðurstöðu með úrskurði 31. ágúst 2005, auk þess að hafna kröfu mannsins um að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað á meðan málið yrði borið undir dómstóla.Maðurinn var sendur aftur til Nígeríu í október í fyrra. Fram kemur í dómnum að maðurinn hafi flúðið heimaland sitt vegna áreitis, ofbeldis og ofsókna nígerísku lögreglunnar. Dómsmálaráðuneytinu þótti ekki ljóst að slíkt ætti við rök að styðjast og því var umsókn mannsins um hæli hér á landi sem flóttamaður hafnað, en við mat ráðuneytisins á því hvort stefnandi teljist flóttamaður og falli undir skilgreininguna í alþjóðasamningnum um stöðu flóttamanna frá 1951 er byggt á ítarlegum upplýsingum um aðstæður í Nígeríu.Í dóm héraðsdóms kemur fram að samkvæmt ákvörðun ráðuneytisins standi ekkert í vegi fyrir því að maðurinn hafi verið sendur aftur til heimalands síns. Flest atvikin sem maðurinn vísaði til megi skilgreina sem almennt eftirlit lögreglu og að frásögn mannsins af áreiti lögreglunnar þar í landi þyki verulega ótrúverðug. Í niðurstöðum dómsins kemur fram að ekki bendi annað til en að úrskurður dómsmálaráðuneytis hafi verið byggður á faglegu og hlutlausi mati á aðstæðum mannsins. Þá kemur fram að af úrskurðinum verði ekki annað ráðið en að jafnræðis hafi verið gætt við matið og að það hafi farið fram innan þeirra valdmarka sem úrlausnarvald ráðuneytisins nær til samkvæmt lögum um útlendinga og skilgreiningum sem felast í samningnum um réttarstöðu flóttamanna.Því féllst dómurinn ekki á að úrskurður ráðuneytisins sé efnislega rangur líkt og maðurinn hélt fram og því var ekki fallist á kröfu hans um að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi. íslenska ríkið var því sýknað af þeirri kröfu mannsins. Málskostnaður milli málsaðila fellur niður og greiðist gjafakostnaður stefnanda úr ríkissjóði alls rúmlega 850.000 krónur.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira