Þurfa að endurskoða frístundabyggð við Úlfljótsvatn 7. júní 2006 12:30 MYND/GVA
Orkuveita Reykjavíkur og fasteignafélagið Klasi þurfa að endurskoða hugmyndir sínar um frístundabyggð við Úlfljótsvatn vegna óskar borgarstjórnar Reykjavíkur þar um. Endurskoðunin hefst þó væntanlega ekki fyrr en ný stjórn Orkuveitunnar hefur verið kosin. Orkuveitan og Klasi stofnuðu í fyrra fyrirtækið Úlfljótsvatn frítímabyggð sem ætlað var að undirbúa sumarhúsabyggð og tengda afþreyingu og í framhaldinu selja almenningi um 600 lóðir undir sumarbústaði. Hins vegar heyrðust fljótlega efasemdarraddir um áformin, meðal annars hjá skátum, Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og umhverfissamtökum. Bentu þessir aðilar á að framkvæmdirnar stefni skógrækt skáta í voða auk þess sem þær hafi áhrif á náttúru, þar á meðal vatnsverndarsvæði Þingvallavatns. Árni Þór Sigurðusson, borgarfulltrúi vinstri grænna, lagði því í gær fram tillögu á síðasta fundi fráfarandi borgarstjórnar um að Orkuveitan og Klasi endurskoðuðu hugmyndir að skipulagi við Úlfljótsvatn. Tillagan var samþykkt með 14 greiddum atkvæðum í borgarstjórn í gær. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir að tillaga borgarstjórnar verði líklega skoðuð á næstu vikum, en þó ekki fyrr en ný stjórn Orkuveitunnar hefur verið kosin þann 21. júní. Hann segist ekki vita í hverju enduskoðunin eigi að felast, bendir á að upphaflega hafi verið gert ráð fyrir 1500 lóðum undir sumarbústaði á svæðinu, sem er 1472 hektarar, en þeim hafi verið fækkað í 600 til að koma til móts við hagsmunaaðila. Kristján Ólafsson, verkefnisstjóri hjá Klasa, segir viðræður í gangi milli félagsins og fulltrúa skáta og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Fullur vilji sé til að ná sátt í málinu og húsin eigi alls ekki að skerða útivistargildi meðfram Úlfljótsvatni. Klasamenn bíði nú eftir því hvaða hugmyndir Árni Þór Sigurðsson hafi um endurskoðun á skipulagi við Úlfljótsvatn og viðræðum við hagsmunaaðila verði haldið áfram.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira