Innlent

Banaslys á Elliðavatnsvegi í gærkvöld

Maður á þrítugsaldri beið bana þegar bíll hans fór út af Elliðavatnsvegi við gatnamótin að Kaldárselsvegi og valt, á tólfta tímanum í gærkvöldi. Annar maður á svipuðum aldri, sem var farþegi í bílnum, slasaðist og var fluttur á slysadeild Landspítalans en mun ekki vera í lífshættu. Ekki er vitað um orsakir slyssins, en lögreglan í Hafnarfirði rannsakar málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×