Innlent

Tónleikaröð að Gljúfrasteini

Gljúfrasteinn
Gljúfrasteinn MYND/Vilhelm Gunnarsson

Heimili nóbelskáldsins á að vera sjálfsagður viðkomustaður ferðamanna og heimamanna. Forsvarsmenn Gljúfrasteins kynntu í gær skýrslu um stefnumótun og framtíðarsýn safnsins.

Stefnan er að gera Gljúfrastein að einu helsta menningarsetri Íslands og föstum áfangastað á leið til Þingvalla. Fyrirhuguð er viðbót við húsnæðið í nágrenni Gljúfrasteins og einnig verður vegur tónlistar aukinn í starfseminni. Halldór Laxness var sjálfur mikill áhugamaður um tónlist og í þeim anda verður röð stofutónleika á Gljúfrasteini í sumar. Tónleikarnir verða klukkan fjögur á sunnudögum og kostar 500 krónur inn. Gljúfrasteinn verður opinn alla daga frá níu til fimm í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×