Dveljast á Íslandi mánuðum saman án þess að fá skólavist 5. júní 2006 20:00
Dæmi eru um að börn frá Austur-Evrópu dveljist hér mánuðum saman án þess að fá skólavist, þó að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveði á um skýlausan rétt þeirra til að ganga í skóla. Enn hefur ekki reynt á hvort börnum, sem hér dveljast án lögheimilis, yrði synjað um skólavist. Frá fyrsta maí síðastliðnum má fólk frá nýju ríkjum Evrópusambandsins koma hingað og leita sér að vinnu í allt að sex mánuði, án þess að hafa hér sérstakt leyfi. Á meðan er fólkið hvorki með lögheimili hér, né íslenska kennitölu, nema það hafi sérstaka evrópska tryggingu.Ef fjölskyldur koma með gildir það sama um þær. Miðað við íslenskan lagaramma er ekki víst að hið opinbera hér á landi myndi greiða fyrir skólavist barna frá Austur-Evrópulöndum á meðan þau eru ekki komin með lögheimili hér. Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur hjá Alþjóðahúsi, segir að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveði á um rétt barna á grunnskólaaldri til skólavistar. Þennan rétt eiga öll börn sem hafa lögheimili í tilteknu landi, en Margrét telur ljóst að samkvæmt barnasáttmálanum nái rétturinn líka til barna sem ekki hafi lögheimili í því landi sem þau dveljast í.Fréttastofan hefur traustar heimildir fyrir því að þó nokkur dæmi séu um að börn á grunnskólaaldri frá Austur Evrópu hafi dvalist hér mánuðum saman án þess að hafa verið í skóla, þrátt fyrir að það sé skýlaus réttur þeirra. Enn hefur þó ekki reynt á það til hlýtar hvort íslenska ríkið myndi borga fyrir skólavist barna sem ekki hafa hér lögheimili. Margrét segir að engin tilvik hafi komið inn á borð til Alþjóðahúss enn sem komið er, en það gæti breyst í haust.Skólastarfi var rétt að ljúka þegar breytingar á flæði vinnuafls tóku gildi þann fyrsta maí. Líklegt verður að teljast að þegar skólastarf hefst í haust muni fyrst reyna til hlítar á það hvernig íslensk stjórnvöld taki á þessu máli. Þá mun væntanlega líka reyna á það hvort íslenskum sveitarfélögum beri að útvega börnum frá nýju ríkjum Evrópusambandsins leikskólavist, þó að þau hafi hér ekki lögheimili.
Fréttir Innlent Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira