Halldór hyggst segja af sér formennsku í Framsóknarflokknum 2. júní 2006 18:12 MYND/Stefán
Halldór Ásgrímsson hyggst segja af sér sem formaður Framsóknarflokksins. Óljóst er á þessu stigi málsins hvort eða hvaða áhrif ákvörðun hans hefur á ríkisstjórnina. Framsóknarflokkurinn fór mjög víða halloka í sveitarstjórnarkosningunum um liðna helgi. Svo virðist sem sú útreið sem flokkurinn fékk hafi strax afleiðingar á forystu hans. Samkvæmt öruggum heimildum NFS hefur Halldór Ásgrímsson ákveðið að segja af sér í sumar. Hann mun hafa greint nánustu samstarfsmönnum sínum frá þeirri ákvörðun. Líklegt þykir að Halldór Ásgrímsson hætti jafnframt þingmennsku eftir 32 ár á Alþingi. Spurning er hvort hann hætti jafnframt sem forsætisráðherra, en þá yrði að stokka upp í ríkisstjórninni. Halldór Ásgrímsson mun ætla að tilkynna flokksfélögum sínum um áform sín á miðstjórnarfundi í næstu viku. Ekki náðist í forsætisráðherra í dag, en nóttina þegar niðurstöður kosninganna lágu ljósar fyrir var hann spurður að því á NFS hvort hann tæki þær til sín og þá játaði hann því. Þá var hann spurður hvort hann ætlaði að gera eitthvað í því og þá svaraði Halldór því til að hann myndi ekki gera það þá nótt. Sterkur orðrómur er um að Finnur Ingólfsson, fyrrverandi varaformaður Framsóknarflokksins og ráðherra, hyggi á endurkomu í pólitík, ekki síst eftir kaup Exista á VÍS, þar sem hann hefur verið forstjóri. Hann gaf ekkert út á það í gær, þegar hann var spurður, en útilokaði ekkert. Ekki er á þessu stigi ljóst hverjar afleiðingar afsögn Halldórs Ásgrímssonar sem formanns Framsóknarflokksins hefur, en það eitt kemur ekki í veg fyrir að hann gegni embætti forsætisráðherra. Jafnvel þótt hann hætti á þingi er honum heimilt að gegna ráðherradómi; fyrir því eru fordæmi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira