Fæturnir hafa stækkað á göngunni 30. maí 2006 22:45 Jón Eggert Guðmundsson á ferð sinni á Austfjörðum.
Jón Eggert Guðmundsson göngugarpur sem þræðir nú strandvegi landsins til þess að afla fé fyrir Krabbameinsfélagið kom í Eyjafjörð í gær. Hann segir gönguna hafa gengið vel hingað til en að fæturnir á sér hafi stækkað á síðustu vikum. Jón Eggert ákvað í fyrra að verða fyrstur til að ganga alla strandvegi landsins, alls 3300 kílómetra. Í fyrrasumar gekk hann frá heimili sínu í Hafnarfirði og á Egilsstaði, alls 986 kílómetra. Hann hélst svo áfram þar sem frá var horfið 6. maí síðastliðinn þar sem lagði upp frá Egilsstöðum. Síðan þá hefur gengið á ýmsu og hann hefur kynnst íslensku veðurfari vel, allt frá 20 stiga hita til stórhríðar. Jón Eggert segir leiðina frá Vopnafirði til Ásbyrgis hafa verið erfiða enda hafi snjóað mikið. Síðustu dagar hafa þó verið skárri og gær kom hann í Eyjafjörðinn í rjómablíðu. Hann hafði þá lagt að baki rúmlega helming vegalengdarinnar, eða um 1700 kílómetra.Hluti af lífsstílsbreytingu Jóni Eggerti til halds og trausts er vinur hans Sigfús Austfjörð sem keyrir á eftir honum og sér um að útvega mat og gistingu. Hann segir gönguna hluta af lífsstílsbreytingu hjá Jóni og hann sé í mun betra formi en þegar hann hóf gönguna í fyrra. Sigfús segir hann hafa verið 142 kíló áður en hann lagði af stað í fyrra en nú sé Jón Eggert um 120 kíló. Jón Eggert viðurkennir að Strandvegagangan sé ákveðin bilun. Hann segist ekki hafa fundið fyrir miklum eymslum það sem af er ferðinni en hins vegar hafi fæturnir á honum stækkað. Í upphafi göngunnar hafi hann þurft skó númer 46 en nú þurfi hann númeri stærra. Hann kunni engar skýringar á þessu. Strandvegaganga er gengin til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Hægt er að leggja sitt af mörkum með því að hringja í söfnunarsímann 907-5050 og verða þá eitt þúsund krónur innheimtar með næsta símreikningi.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira