Þyrlan getur ekki bjargað mönnunum af Hvannadalshnjúki 30. maí 2006 15:12 Úr myndasafni MYND/Gunnar V. Andrésson
Skýjabakkar eru að setjast inn að Hvannadalshnjúki og er nú útséð með að þyrla Landhelgisgæslunnar geti lent til bjargar mönnunum fimm sem lentu þar í snjóflóði. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu eru allir mennirnir eitthvað lemstraðir, en enginn alvarlega. Einhverjir eru ökklabrotnir og því ógöngufærir. Reynt verður að ferja björgunarsveitarmenn upp á Öræfajökul með þyrlunni og þeir síga niður. Einnig munu fallhlífarsveitir flugbjörgunarsveita stökkva út úr flugvél Flugmálastjórnar en það mun vera í fyrsta skipti sem slíkt er gert í björgunaraðgerð hér á landi. Fjöldi björgunarsveitarmanna eru á leið á staðinn, frá Höfn og frá Reykjavíkursvæðinu. Mennirnir voru á leið upp á Hnjúkinn á eigin vegum en voru með talstöð og gátu þannig haft samband og látið vita af sér og verið í góðu sambandi við björgunarmenn. Eftir því sem næst verður komist voru mennirnir á leið upp á Hnjúkinn sjálfan þegar flóðið féll á þá og bárust þeir alla leið niður á sléttuna fyrir neðan hann, niður í um 1950 metra hæð. Þeir hafa af því að dæma getað runnið niður einhverja 100-150 metra.
Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira