Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson næsti Borgarstjóri - Björn Ingi formaður Borgarráðs 29. maí 2006 19:57 MYND/Pjetur Sigurðsson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verður næsti borgarstjóri í Reykjavík en nú síðdegis samdi hann við Björn Inga Hrafnsson um myndun meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn. Þetta var tilkynnt klukkan fimm í dag en þremur stundum fyrr sleit Vilhjálmur viðræðum við oddvita Frjálslynda flokksins um myndun meirihluta. Vilhjálmur, Björn og aðrir borgarfulltrúar flokkana stigu útá hlað að heimili Vilhjálms í Breiðholti og tilkynntu oddvitarnir um niðurstöðuna. Þetta er í fyrsta sinn sem teðir flokkar mynda meirihluta í Borgarstjórn. Vilhjálmur verður borgarstjóri og Björn Ingi formaður borgarráðs. Ekki var tilkynnt um niðurstöðu í sameiginlegum málefnasamningi en oddvitarnir létu þess getið að ekki þyrfti að kvika frá stefnumálum sem flokkarnir hefuðu heitið í kosningabaráttunni. Ekki var nákvæmar útlistað um áherslur eða skiptingu í nefndir og ráð. Gáfu odditarnir í skyn að þeir myndu tilkynna um það síðar hvernig stjórn borgarinnar yrði hagað í smáatriðum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk sjö borgarfulltrúa í kosningunum en Framsóknarflokkurinn einn. Sameiginlegt fylgi flokkana tveggja, þó meirihluta hafi, er innan við 50% eða rétt rúm 49%. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem minnihluti atkvæða í borgarstjórnarkosningum skilar meirihluta borgarfulltrúa, þó áður hafi það verið með þeim hætti að einn flokkur - Sjálfstæðisflokkur, hafi þá fengið meirihluta með minnihluta atkvæða. Þegar dagur hófst lá fyrir að viðræður voru í gangi um myndun meirihluta á milli Sjálfstæðisflokks og Frjálslynda flokksins. Höfðu efstu menn flokkana fundað síðdegis í gær og fram á kvöld. Hafði verið ákveðið að hittast að heimili Ólafs F. Magnússonar klukkan eitt til þess að halda þeim viðræðum áfram. Menn í efsta sætum á lista Frjálslyndra hittust í hádeginu að heimili Ólafs til þess að fara yfir stöðuna fyrir framhaldsviðræðurnar og leit út fyrir að meirihluti væri að myndast. Klukkan tvö í dag hafði Vilhjálmur Þ. ekki enn látið sjá sig heim á fyrirhugaðan fund. Steig Ólafur þá útfyrir heimili sitt og tilkynnti blaðamönnum að Vilhjálmur hefði haft samband við sig og slitið viðræðunum um myndun meirihluta. Að sögn Ólafs hefði hann borið því við að afstaða frjálslyndra í umhverfismálum og flugvallarmálum hindruðu samstarf þessara tveggja flokka. Var Ólafur F. afar ósáttur við vinnubrögð Vilhjálms. Atburaðarrásin hefur sannarlega verið hröð í dag og vert að hafa í huga að þegar hann hófst stóðu yfir viðræður um myndun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Frjálslyndra. Þegar borgarfulltrúar sjálfstæð'isflokks og framsóknarflokks fóru að flykkjast að heimili Vilhjálms Þ Vilhjálsmsonar, oddvita sjálfstæðismanna að Máshólum í Breiðholti í dagh var ljóst að til tíðinda hefði dregið og meirihluti þessara flokka væri í höfn. Sjálfstæðisflokkuyrinn fékk sjö borgarfullt´rua í kosningunum og Framsókanrflokkurinn einn. Átta menn af fimmtán þýðir meirihlkuti - þó svo að þessi tvei8r flokkar hafi samtals fengið innan við helming atkvæða eða rúmelga 49 prósent. Fyrir hálfri annari klukkustund stigu leiðtogar flokkana ásamt efstu mönnum á lista fram á tröppur.... Vilhjálmur Björn Ingi En atburðarráðsin hefur veirð hröð í dag og þegar dagur rann stóðu frjálslyndir í þeirri trú að meirihluti og sjálfstæðismanna væri að smella smana. Efstu menn á lista frjálslyndra hittust í hádeginu heima hjá Ólafi F Magnússyni til að fara yfir stöðuna eftir viðræður við Sjálkfsætiosmenn í gærdag og gærkvöld. Bjart var yfir frjálslyndum og meirihlutinn lá í loftinu. 'olafur átti von á Vilhjálmi til sín uppúr klukkan eitt - en ekkert bólaði á honum. Stuttu síðar koma 'Olafur út á hlað og tilkynnti um að Vilhjálmur hefði hringt - samstarf var úr sögunni.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira