Eldur logar um borð í Akureyri EA-110 27. maí 2006 15:07
Eldur logar í Akureyrinni EA-110 en skipið er um 75 sjómílur norðvestur af Látrum. TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar er farin af stað með slökkviliðsmenn til aðstoðar skipverjum og björgunarskip Landsbjargar hafa verið sett í viðbragðsstöðu og verður sent af stað ef það þörf krefur og það er talið geta komið að notum. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga barst neyðarkall frá Akureyrinni EA-110 kl. 14:20. Áhöfn björgunarþyrlunnar Lífar var þegar kölluð út. Einnig voru kallaðir út reykkafarar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins til að fara með þyrlunni. Um borð í Akureyrinni er 18 manna áhöfn. Danska varðskipið Triton var einnig beðið um aðstoð og þyrla þess verður send með fleiri slökkviliðsmenn og varðskipið Óðinn lagði strax af stað í átt að skipinu. Þrír togarar voru nærri Akureyrinni þegar eldur kom upp og héldu þegar í átt að skipinu. Það eru togararnir Júlíus Geirmundsson sem var næstur, Guðmundur í Nesi og Örvar. Björgunarbátar á Vestfjörðum og Snæfellsnesi voru settir í viðbragðsstöðu. Líf fór í loftið kl. 14:57 og er komin að skipinu. Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, Syn, fylgir Líf til öryggis en hún fór í loftið kl. 16. Þyrla varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli var kölluð út og bíður hún á Reykjavíkurflugvelli ef flytja þarf fleiri reykkafara. Akureyrin EA-110 er 900 brúttólesta skuttogari gerður út af Samherja á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar er ekki vitað hvort slys hafa orðið á mönnum. Á svæðinu er nú norðaustan 8 til 13 metrar á sekúndu og skýjað en með kvöldinu eru horfur á snjó eða slydduéljum en veður fer kólnandi á þessu svæði. Hitinn núna hefur verið á bilinu 2-4 stig en í kvöld kólnar niður undir frostmark.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira