Mikil umferð austur á Kirkjubæjarklaustur 27. maí 2006 09:35
Mikil umferð var austur á Kirkjubæjarklaustur seinnipartinn í gær og fram á nótt í tengslum við mótorkrossmót sem haldið er þar um helgina. Talið er að á annað þúsund manns séu nú samankomin á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni, þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni Umferðin gekk ágætlega fyrir sig en þó ekki alveg áfallalaust því lögreglan kærði 15 ökumenn fyrir of hraðan akstur og var sá sem hraðast ók á 124 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 90. Þá var tilkynnt um umferðarslys á Mýrdalssandi kl. 01:41 í nótt. Ökumaður hafði misst stjórn á bifreið sinni sem endaði utan vegar og enda stakkst áður en hún stöðvaðist 100 metrum utan við veginn. Auk lögreglu komu læknar frá Kirkjubæjarklaustri og Vík ásamt sjúkrabifreið á vettvang. Þrír voru í bifreiðinni og var einn fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landsspítalans í Fossvogi til frekari rannsóknar. Hann er ekki talinn alvarlega slasaður. Bifreiðin var fjarlægð með kranabifreið af vettvangi. Skemmtanahald á Kirkjubæjarklaustri fór ágætlega fram í nótt en einn ökumaður var stöðvaður grunaður um ölvun við akstur. Þá var einn aðili handtekinn og færður á lögreglustöðina til yfirheyrslu vegna gruns um vörslu fíkniefna en við leit fannst lítilræði af meintu amfetamíni í fórum hans. Manninum var sleppt að yfirheyrslu lokinni og telst málið upplýst.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira