Porti Hafnarhússins breytt í óperusal 26. maí 2006 22:56 Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Mynd/Vísir
Heldur óvenjuleg óperusýning var frumsýnd í porti Hafnarhússins í kvöld. Óperan Föðurlandið, Le Pays, fjallar um ástir fransks sjómanns og íslenskrar sveitastúlku og margt bendir til að óperan byggi á sönnum atburðum.Fjöldi þekktra listamanna kemur að óperunni en verkið er flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands og þremur af þjóðþekktum söngvurum þeim Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Bergþóri Pálssyni og Gunnari Guðbjörnssyni Uppsetning óperunnar er sérstök fyrir margar sakir en aldrei áður hefur óperusýning verið sett upp í Hafnarhúsi svo vitað sé. Óperan var samin á árunum 1908-1910 af frakkanum Joseph Goy Ropartz. Sýningin var frumflutt í Nancy í Frakklandi 1912 og aftur ári síðar en svo virðist sem óperan hafi ekki verið flutt síðan í heild sinni á sviði svo vitað sé síðan þá. Margt bendir til að óperan sé byggð á sönnum atburðum sem áttu sér stað við Hornafjörð árið 1873 þegar fimm franskar skútur fórust og aðeins einn maður komst af. Maðurinn fékk aðhlynningu á bænum Vestra-Horni og er talið að ástir hafi tekist með honum og heimasætunni á bænum. Sjómaðurinn var síðar sóttur af frönsku eftirlitsskipi og talið er að hann hafi rakið raunir sínar fyrir skipsáhöfninni og saga hans hafi síðar orðið kveikja af smásögu og óperunni sem um ræðir.Síðari sýning á óperunni verður á morgun klukkan 16.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira