Innlent

Handtóku fjóra innbrotsþjófa í Breiðholti

Lögreglan í Reykjavík handtók fjóra innbortsþjófa í Breiðholti í nótt þegar þeir brutust þar inn í fyrirtæki. Einn var gripinn glóðvogur þegar hann var að skríða þar út um glugga, lögreglumenn hlupu aðra tvo uppi, en sjá fjórði, sem slapp undan þeim, hljóp í flasið á þeim skömmu síðar. Mennirnir, sem eru allir innan við tvítugt eru grunaðir um fleiri afbrot upp á síðkastið og verða yfirheyrðir í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×