Stimpilgjöld skila 9 milljörðum 19. maí 2006 18:59
Stimpilgjöld skiluðu tvöfalt hærri fjárhæð í ríkissjóð í fyrra en áætlað var. Þessi skuldaskattur skilaði fjórum komma fimm milljörðum meira en vænst var, aðallega vegna skuldbreytinga íbúðalána. Engin merki eru um að þessi skattur verði afnumin þrátt fyrir að leiðtogar stjórnarflokkana hafa kallað hann "úreltan og gamaldags hortitt". Á ársfundi ráðgjafastofu um fjármála heimilanna í gær var lögð á það áhersla að stimpilgjöld af lántökum yrði afnumin - ekki að undra enda stendur það í fólki að borga tugi þúsunda fyrir það eitt til dæmis að skuldbreyta láni. Að skattleggja lántökur eða skuldir með þessum hætti er skrítið fyrirkomulag - og hefur verið til skoðunar lengi að afnema þennan skatt. Landsfundur sjálfstæðismanna lagði til breytingar á þessu kerfi árið 2001 og síðan þá hafa breytingar verið gerðar - en einkum og sér í lagi útfrá hagsmunum fyrirtækjanna. Einstaklingar þurfa enn að borga 150 þúsund kall í skatt af 10 milljón króna lántöku. Síðustu misseri hafa orðið miklar hræringar á íbúðalánamarkaði með miklum endurfjármögnun og ríkissjóður hefur grætt á tá og fingri af skuldaskattinum. 2004 var skatturinn hátt í tövfallt meiri en árið 2003 og á síðasta ári fékk ríkissjóður rúma níu milljarða útúr þessum skattstofni. Ríkið hafði ekki búist við nema 4,6 milljörðum. Í ár er enn búist við því í fjárlögum að stimpilgjöldin skili 6 miljörðum - og það ætti að nást ..og ef til vill gott betur því fyrstu þrjá mánuði ársins skiluðu stimpilgjöldin tveim komma tveimur milljörðum. Pólitískan vilja virðist ekki vanta í orði til að afnema þessa skatta. Þannig ályktaði landsfundur um þetta skildi gert núna síðasta haust ... eins og landsfundur gerði 2001. Halldóri Ásgrímssyni kallaði þennan skatt "hortitt" í fyrra - spurning svo sem hvort 9 milljarðar teljast ekki nokkuð feitur hortittur. Geir H Haarde hefur varla skipt um skoðun en fyrir 6 árum kallaði hann stimpilgjöldin frumstæðan og gamaldags - skatturinn varla orðin nútímalegri nú sex árum síðar. Margrét Frímannsdóttir flutti frumvarp um afnám þessa skatts eða í það minnsta afnám við endurfjármögnun fyrir vorið 2005. Stjórnarliðar svæfðu málið í nefnd. ..þar sem það sefur enn.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira