Ekki kemur til greina að taka upp vegtoll 10. apríl 2006 23:19 Björgvin G. Sigurðsson MYND/Vísir
Hugmyndir um vegtoll um Suðurlandsveg eru algjörlega óásættanlegar að mati Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Tryggingafélagið Sjóvá vill endurbyggja Suðurlandsveg með tveimur akreinum í hvora átt og en forstjóri fyrirtækisins segir að jafnvel megi fjármagna framkvæmdirnar með vegtolli. Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá hefur sagt að félagið, ásamt nokkrum fjárfestum, vilja flýta tvöföldun Suðurlandsvegar. Víða megi finna dæmi þess erlendis að einkaaðilar og ríki taki saman höndum við viðlíka framkvæmdir. Þór telur að hugsa megi sér að ríkið greiddi eiganda vegarins veggjald af hverjum bíl sem færi um veginn, eða að vegtollur yrði innheimtur eins og við Hvalfjarðargöng. Málið hefur verið rætt við samgöngurráðherra. Á núgildandi samgönguáætlun er gert ráð fyrir að vegurinn frá Reykjavík til Selfoss verði þrjár akgreinar eða svokallað 2+1 fyrirkomulag. Ekki eru allir sáttir við það en Björgvin segir að umferðaröryggi kalli á það að vegurinn verði tvöfaldaður í áföngum en ekki farið í bráðabirgðaframkvæmdir til skamms tíma eins og 2+1 vegur sem svari alls þörfum umferðar á svæðinu. Björgvin segir að íbúum hafi fjölgað langt umfram spár. Nauðsynlegt sé að tvöfalda bæði fyrir íbúa á svæðinu og eigendur sumarhúsa á svæðinu sem skipti þúsundum. Hann segir að skoða eigi einkaframkvæmdir með opnum huga en ekki komi til greina að taka upp vegtoll þar sem um þjóðveg sé að ræða.
Fréttir Innlent Mest lesið Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Sjá meira