Baugsmálið kostar nærri 1.500 milljónir 24. febrúar 2006 18:44
Aðalmeðferðinni í Baugsmálinu lauk sem kunnugt er í héraðsdómi Reykjavíkur í gær, en nú eru meira en þrjú ár frá því rannsóknin hófst. Það var í kjölfar upplýsinga og ásakanna frá Jóni Geraldi Sullenberger, fyrrum viðskiptafálaga baugsfeðga, um skattsvik og annað sukk og svínarí. Upphaflega voru ákæruliðirnir 40, en eftir frávísanir og hlaup á milli Héraðsdóms og Hæstaréttar, stóðu átta liðir eftir. Fjórir þeirra vegna frágangs ársreikninga, þar sem deilan stendur um hvort stjórnendur hafi fengið lán frá Baugi, og hins vegar þá, hvernig átti að færa það til bókar. Hinir fjórir voru vegna svindls við innfluting á fjórum bílum. Fréttastofa hefur ekki fengið uppgefið hversu mikið rannsókn Baugsmálsins eða málshöfðunin kostaði ríkið, og ekki eru ennþá öll kurl komin til grafar, því Sigurður Tómas Magnússon, sérstakur saksóknari í málinu, hefur enn ekki ákveðið hvort hann endurákærir í þeim 32 liðum sem vísað var frá. Hins vegar má ætla að kostnaður ríkisins sé ekki undir 200 milljónum króna vegna málsins. En þetta eru þó smáaurar miðað við það sem Baugsmenn þurfa að reiða fram. Þótt ekki er tekið tillit til þess gróða sem Baugur hefur orðið af vegna málaferlanna og hinnar neikvæðu umfjöllunnar, sem Jón Ásgeir hefur sagt að hlaupi á milljörðum. Eftir því sem fréttastofa kemst næst, munu málsvarnarlaun sexmenninganna sem ákærðir eru í Baugsmálinu, rannsóknarvinna, almannatengsl og annar kostnaður Baugs vegna málaferlanna nema eitt þúsund og tvö hundruð milljónum króna. Samtals gæti því Baugsmálið kostað meira einn og hálfan milljarð króna.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira