Innlent

Ráðherra segir farið yfir fjárhagsleg málefni HA

MYND/Pjetur

Menntamálaráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um fjárhagsstöðu Háskólans á Akureyri. Þar kemur fram að ráðherra hafiáundanförnum mánuðum unnið að því í góðri samvinnu við rektor Háskólans áAkureyri að fara yfir fjárhagsleg málefni skólans.Markmiðið séað finna varanlega lausn á málefnum skólans. Þar kemur einnig fram að menntamálaráðherra hafiá undanförnum mánuðum ítrekað rætt fjárhagsvandaháskólansí ríkisstjórn.

Ráðherra segir að sá vandi sem HA standiframmi fyrir í rekstri sínu stafiaf hröðum vexti háskólans á undanförnum árum en ekki niðurskurði framlaga.Nemendum skólans samkvæmt fjárlögum hafifrá árinu 2000 fjölgað um 123prósentásama tíma og nemendum annarra háskóla fjölgaði að meðaltali um 60prósent. Á samatímabilihafifjárveitingar til HA á föstu verðlagiaukistum 113prósentenfjárveitingar til annarra háskóla hafiaukist að meðaltali um 52prósent.

„ Vandinn er heldur ekki sá að HA fái ekki sömu framlög vegna nemenda og aðrir háskólar. Sömu framlög eru greidd til allra háskóla fyrir nemendur í sama námi. Meðalframlög til nemenda í Háskóla Íslands eru nokkuð hærri en til HA vegna þess að þar eru margir nemendur í mjög dýru námi, s.s. læknisfræði og verkfræði.

Hitt er rétt að Háskólinn á Akureyri fær ekki jafnhá rannsóknarframlög og Háskóli Íslands. Það sama á við um alla aðra háskóla á landinu enda er Háskóli Íslands helsta rannsóknarstofnun landsins. Samanburður á rannsóknarframlögum til HÍ og annarra háskóla er því ekki raunhæfur.

Húsaleiga í hinu nýja rannsóknarhúsi Borgum hefur leitt til nokkurs kostnaðarauka fyrir HA og er það eitt þeirra atriða sem nú er verið að skoða sérstaklega í sameiginlegri vinnu ráðuneytis og skólans.

Ráðuneytið hefur að fullu staðið við þau fyrirheit sem það hefur gefið í tengslum við áformaðar úrbætur. Ráðuneytið treystir því einnig að stjórnendur skólans haldi áfram að styrkja innviði skólans og færa rekstur hans til betri vegar ekki síst með það í hugi að hann geti staðist ítrustu kröfur sem gerðar eru alþjóðlega til háskóla," segir að lokum í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×