Ný gögn í Baugsmálinu 20. febrúar 2006 11:47 Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, og Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, ræðast við í Héraðsdómi Reykjavíkur. MYND/Einar Ólason
Uppnám varð við aðalmeðferð í Baugsmálinu svo kallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar ákæruvaldið lagði fram ný gögn í málinu sem verjendur höfðu ekki séð áður og ákæruvaldið fékk fyrst í hendurnar í gær. Áætlað er að vitnaleiðslur yfir öllum ákærðu í málinu fari fram í dag. Gögnin höfðu borist frá Ivan Motta, bílasala í Bandaríkjunum, og eru reikningar fyrir tveimur af fjórum bifreiðum sem fluttar voru inn á árunum 1998 til 2000 og deilt er um. Forsvarsmönnum Baugs er meðal annars gefið að sök að hafa flutt bílana inn án greiðslu tilskilinna gjalda. Vegna reikninganna kemur fram breyting í bókun ákærunnar og verður stuðst þá á morgun þegar vitnaleiðslur yfir Ivan Motta hefjast fyrir dómi. Verjendur höfðu ekki séð gögnin fyrr en þau voru lögð fyrir í morgun og fengu því tíu mínútna hlé til að kynna sér þau. Verjendur mótmæltu síðan framlagningu þeirra en gerðu ekki kröfu um að aðalmeðferð yrði frestað þar til niðurstaða fengist í þessum hluta málsins. Vitnaleiðslur yfir Jón Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, hófust síðan en áætlað er að allir ákærðu í málinu beri vitni fyrir dómi í dag. Þeir ákæruliðir sem eftir standa í Baugsmálinu lúta að meintum brotum á almennum hegningarlögum, tollalögum og lögum um ársreikninga. Forsvarsmönnum Baugs er meðal annars gefið að sök að hafa sett fram ársreikninga á rangan og villandi hátt á þriggja ára tímabili. Jón Ásgeir var spurður í þaula um tengsl Baugs við dreifingarfyrirtækið Aðföng og fjárfestingarfélögin Gaum og Fjárfar og kaup Baugs og Gaums á birfreiðum frá Bandaríkjunum í gegnum Jón Gerald Sullenberger. Jón Ásgeir sagðist ekki hafa komið að bílakaupunum og ekki komið nálægt gerð innflutningsskýrslna vegna bifreiðanna.
Fréttir Innlent Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Sjá meira